Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins:
Í heilan áratug hafa borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins barist fyrir úrbótum á hinni fjölförnu skiptistöð í Mjódd í því skyni að bæta aðstöðu strætisvagnafarþega. Hægt hefur gengið og hafa úrbótatillögur ýmist verið felldar eða svæfðar af hinum ýmsu vinstri meirihlutum í borgarstjórn. Skiptistöðin hefur þannig vísvitandi verið vanrækt af borgaryfirvöldum í tíu ár.
Nokkur árangur hefur náðst en þó er enn langt frá því að aðstaðan þar sé viðunandi. Kvartað hefur verið yfir ólátum og jafnvel ofbeldi í og við skiptistöðina eins og komið hefur fram í fjölmiðlum.
Umhirðu og eftirliti með biðsal skiptistöðvarinnar hefur lengi verið stórlega ábótavant. Salurinn er óvistlegur og húsbúnaður fátæklegur. Aðeins eitt salerni af þremur er nú í notkun og brýn þörf er á að endurnýja þau öll.
Í janúar 2016 lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að biðsalurinn í Mjódd yrði opinn fyrir farþega á kvöldin á meðan strætisvagnar ganga en opnunartíminn hafði þá nýlega verið styttur verulega. Þáverandi vinstri meirihluti hafði engan áhuga á málinu og náði tillagan því ekki fram að ganga.
Árið 2017 lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram nýja tillögu um almennar úbætur á skiptistöðinni . Tillagan var tekin til afgreiðslu í borgarráði eftir að hafa verið frestað í þrjá mánuði en þá var hún felld með atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar.
Afgreiðslu frestað í rúmt ár
Árið 2022 tóku borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins málefni skiptistöðvarinnar upp að nýju eftir að margar kvartanir höfðu borist vegna ástands hennar. Eftirfarandi umbætur voru lagðar til:
1. Kvöldopnun. Biðstöðin yrði opin farþegum á kvöldin á meðan strætisvagnar ganga.
2. Gæsla yrði aukin í biðsalnum og salernisþrifum komið í lag.
3. Sætum í biðsal yrði fjölgað og þau löguð sem fyrir eru.
4. Biðsalurinn yrði gerður hlýlegri, t.d. með uppsetningu listaverka.
Tillagan var tekin til afgreiðslu rúmu ári síðar, í nóvember 2023, og þá vísað frá af meirihluta Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar.
Mathöll í Mjódd?
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu einnig til árið 2023 að skoðaðir yrðu möguleikar á því að tengja göngugötuna í Mjódd og skiptistöð Strætó með sérstakri byggingu og að þar yrði komið á fót mathöll í samstarfi við einkaaðila. Markmið verkefnisins yrði að efla Mjóddina sem verslunar- og þjónustumiðstöð og bæta þjónustu við strætisvagnafarþega. Tillagan var felld með atkvæðum meirihluta Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar.
Skrafhópur skipaður
Þrátt fyrir vítavert skeytingarleysi borgaryfirvalda hafa nokkrar úrbætur verið gerðar á skiptistöðinni. Eitt yfirlýstra markmiða nýs vinstri meirihluta, sem tók við völdum í mars 2025, var að ráðast í úrbætur á skiptistöðinni í Mjódd. Verkin voru þó ekki látin tala heldur skipaður ,,stýrihópur“ um málið. Við sjálfstæðismenn lögðumst gegna því að vísa málinu þannig til nefndar og vildum láta verkin tala enda alveg skýrt hvað þyrfti að gera. Auk áðurnefndra atriða lögðum við til að ráðist yrði í viðhald og lagfæringar á útisvæði skiptistöðvarinnar, þ.e. brautum, köntum og gangstéttum á skiptistöðinni, sem væru í mjög slæmu ástandi. Viðgerðir eru nú loks hafnar á útisvæðinu, og er ástæða til að fagna því.
Opnunartími biðsalarins hefur verið lengdur til kl. 22 á virkum dögum. Þá hefur húsbúnaður verið bættur þótt ekki sé hann til fyrirmyndar. Í skiptistöðinni er rekin smáverslun og hefur rekstraraðili hennar séð um þrif og sinnir ýmsum öðrum hlutum eftir bestu getu.
Eftir langvarandi skeytingarleysi er tímabært að borgaryfirvöld komi rekstri skiptistöðvarinnar í lag. Bæta þarf húsbúnað og gera biðsalinn hlýlegri, t.d. með uppsetningu listaverka. Endurnýja þarf salernin og tryggja fullnægjandi þrif þeirra. Ljúka þarf endurbótum á útisvæði svo það verði sómasamlegt. Síðast en ekki síst þarf að efla öryggisgæslu í skiptistöðinni.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu föstudaginn 30. janúar 2026

