15. janúar 2026

Meirihluti myrkurgæðanna

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins:

Götulýsingu hefur verið ábótavant í flestum hverfum Reykjavíkur undanfarna vetur vegna ónógs viðhalds og tíðra bilana. Fjölmargir ljósastaurar eru óvirkir og dæmi um að þeir hafi verið það vikum, mánuðum og jafnvel árum saman. Margar kvartanir hafa borist frá íbúum vegna óvirkra ljósastaura og lélegrar gatnalýsingar af þeim sökum.

Grunnþjónusta vanrækt

Höfum við borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins margoft tekið málið upp á vettvangi borgarstjórnar og lagt til að bætt verði úr með peruskiptum og/eða viðgerðum á óvirkum ljósastaurum í einstökum götum eða jafnvel heilu hverfunum. Skýtur skökku við að viðhaldi götulampa sé svo illa sinnt að borgarfulltrúar þurfi að flytja sérstakar tillögur um einföld peruskipti eða minni háttar viðgerðir. Slíkt ástand afhjúpar arfaslaka verkstjórn núverandi meirihluta borgarstjórnar.

Vanræksla á viðhaldi götulýsingar hefur óþægindi og hættur í för með sér fyrir vegfarendur, ekki síst gangandi og hjólandi. Þá er óviðunandi að lýsing sé slæm þegar kvörtunum fjölgar um kynbundna áreitni og ofbeldi á götum úti. Ónóg götulýsing gefur misindismönnum tækifæri til myrkraverka.

Spekingar spjalla

Á sama tíma og viðhald ljósastaura er vanrækt í stórum stíl, hefur miklu fé og fyrirhöfn verið varið í vinnu vegna svokallaðrar ljósvistarstefnu fyrir Reykjavík. Í stefnunni er fjallað um ljósvist í borginni af mikilli speki og með uppskrúfuðu orðalagi. ,,Útgangspunktur stefnunnar er norrænn skilningur á ljósi og fagurfræði,“ segir þar m.a. Í stefnunni er einnig lögð áhersla á verndun ,,myrkurgæða“, sem kann að skýra hversu lítinn áhuga vinstri meirihlutinn hefur á að viðhalda gatnalýsingu í borginni.

Umrædd ljósvistarstefna er skólabókardæmi um gæluverkefni sem vinstri flokkarnir í borgarstjórn setja í forgang á meðan grunnþjónustan, gatnalýsingin, verður út undan. Fyrir skattgreiðendur er auðvitað aðalatriðið að lýsingin sé í lagi en ekki að spekingar sitji árum saman að spjalli um ljósvistarstefnu með tilheyrandi kostnaði.

Ljósvistarstefnan var lögð fyrir borgarstjórn til samþykktar í desember 2025. Við borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gagnrýndum að í stefnunni væri lítið sem ekkert vikið að því, sem skiptir almenning mestu máli, þ.e. að götulýsingu sé vel sinnt og viðhaldið. Augljóst er að viðhald gatnalýsingar er brýnasta verkefnið í ljósvistarmálum borgarinnar nú um stundir. Einungis nokkrum orðum er vikið að viðhaldi utanhússlýsingar í borginni í stefnunni og engin markmið sett fram um hana.

Kveikjum á perunni!

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu til breytingar til að bæta úr augljósum ágalla á stefnunni. Meðal annars að kveðið væri á um að viðhaldi götulampa skyldi sinna af metnaði og kostgæfni í borginni í því skyni að lýsing gatna og stíga sé ætíð fullnægjandi og í sem bestu horfi.

Þá var lagt til að skýr viðmið yrðu sett um hvernig staðið verði að viðhaldi ljósastaura á götum, stígum og öðrum svæðum borgarinnar. Markviss bilanaleit verði hluti af viðhaldi og fylgst með ábendingakerfi borgarinnar í þessu skyni. Vinnuregla verði sett um að brugðist verði við ábendingu um óvirkan götulampa innan þriggja virkra daga með peruskiptum eða viðgerð ef þörf krefur.

Þessum tillögum Sjálfstæðisflokksins um viðhald ljósastaura og peruskipti var illa tekið af meirihlutanum og þær felldar með atkvæðum hans, þ.e. Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna.

Vinstri meirihlutinn er því hvorki fær um að horfast í augu við þann vanda, sem við er að glíma í gatnalýsingu í Reykjavík né að bregðast við honum með viðeigandi hætti. Það sýnir fram á nauðsyn þess að skipt verði um meirihluta en til þess gefst tækifæri í vor þegar kosið verður til borgarstjórnar.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 15. janúar 2026