9. desember 2025

Jólaball Hvatar á sunnudag

Hið árlega jólaball Hvatar verður haldið sunnudaginn 14. desember á milli kl. 14:00 til 16:00 í bókastofunni í Valhöll. Dansað verður í kringum jólatréð undir ljúfum tónum Illuga Gunnarssonar og jólasveinninn mætir á svæðið með glaðning fyrir börnin.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Aðgangseyrir er 2.500 kr. og rennur allur ágóði til Mæðrastyrksnefndar. Posi verður á staðnum en einnig er hægt að styrkja með frjálsum framlögum eða millifærslu: Reikn.nr. 0526-26-650169, kt. 650169-4689.

Takið tímann frá og gleðjumst saman á aðventunni.

Verið hjartanlega velkomin.

Stjórn Hvatar, félag Sjálfstæðiskvenna í Reykjavík