Boðað er til félagsfundar hjá Sjálfstæðisfélaginu Fróða og Fjölni, félagi ungra sjálfstæðismanna þriðjudagskvöldið 2. desember kl. 20:15 í Safnaðarheimilinu á Hellu.
Dagskrá fundar:
- Sveitarstjórnarkosningar 2026
- Önnur mál
Á fundinum verður lögð fram tillaga til vals á framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar ásamt tillögu um kjörnefnd/uppstillinganefnd.
Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum.
Stjórnir

