Í samræmi við lög Heimdallar boðar stjórn félagsins til aðalfundar þann 3. júní næstkomandi, kl. 20:00. Verður hann haldinn í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Dagskráin verður sem hér segir:
- Skýrsla stjórnar.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
- Lagabreytingar.
- Umræður og afgreiðsla stjórnmálaályktunar.
- Kosning stjórnar, varastjórnar, tveggja endurskoðenda og eins til vara.
- Önnur mál
Í stjórn félagsins sitja tólf menn að formanni meðtöldum. Á aðalfundi skulu ennfremur kosnir varamenn í varastjórn félagsins. Skulu þeir vera að lágmarki tveir en þó ekki fleiri en sex talsins, kjörnir í númeraröð.
Formaður skal kosinn sérstaklega. Stjórnin er kosin á aðalfundi félagsins til eins árs í senn.
Framboð til stjórnar og formanns skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Framboðum (fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer) skal skilað á heimdallur@xd.is, með afriti á jonb@xd.is, fyrir kl. 20:00 þann 27. maí 2025.
Skrifleg framboð skulu hafa borist fyrir settan frest.
Á aðalfundi skal kjósa tvo endurskoðendur og einn til vara. Tillagna um endurskoðendur leitar fundarstjóri á aðalfundi. Lögum Heimdallar má aðeins breyta á aðalfundi og þarf 2/3 atkvæða allra fundarmanna til að breytingin nái fram að ganga. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund. Lagabreytingum skal skilað á heimdallur@xd.is, með afriti á jonb@xd.is, fyrir kl. 20.00 sunnudaginn 1. júní 2025.
Stjórn Heimdallar

