Árni Grétar Finnsson ráðinn aðstoðarmaður formanns Sjálfstæðisflokksins

24. mars 2025

'}}

Árni Grétar Finnsson hefur tekið við starfi aðstoðarmanns Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins. Árni Grétar starfaði áður sem aðstoðarmaður Guðrúnar í dómsmálaráðuneytinu og heldur því samstarf þeirra áfram á nýjum vettvangi.

Árni Grétar lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2022. Hann hefur starfað sem lögmaður á efnahags- og samkeppnishæfnissviði Samtaka atvinnulífsins, sem fulltrúi á Landslögum – lögfræðistofu og hjá CATO lögmönnum, auk þess að hafa verið blaðamaður á Morgunblaðinu og á mbl.is.

Hann hefur mikla reynslu af félagsstörfum og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum innan Sjálfstæðisflokksins, m.a. sem formaður Stefnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, auk þess að hafa setið í stjórn Orators og Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Þá hefur hann einnig starfað í fjölmörgum nefndum og stjórnum á vegum stjórnvalda og í atvinnulífinu.

Árni Grétar er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði en býr nú í Kópavogi ásamt eiginkonu sinni, Melkorku Þöll Vilhjálmsdóttur, lögfræðingi hjá Hugverkastofunni, og eiga þau þrjú börn.