Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Kópavogs verður haldinn fimmtudaginn 20. mars kl. 17:30 að Hlíðasmára 19.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Samþykkt reikninga
- Ákvörðun árgjalds
- Lagabreytingar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnar
- Kosning varastjórnar
- Kosning skoðunarmanna
- Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi
- Kosning fulltrúa í kjördæmisráð Suðvesturkjördæmis
- Önnur mál.
Við hvetjum áhugasamt félagsfólk til að gefa kost á sér í stjórn félagsins.
Framboðsfrestur er til miðnættis mánudaginn 17. mars 2025 og skulu þau send á xdkop@xdkop.is fyrir þann tíma. Tilgreina skal hvort félagar bjóði sig fram í formann, stjórn eða varastjórn.
Stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs