Ríkisstjórnin banni tölvupóstaflóð

11. mars 2025

'}}

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins:

Á dögunum barst mér upplýsandi tölvupóstur frá grunnskóla barnanna minna. Tilefnið var gengi skólans í heilsu- og hvatningarverkefni og var einn þriggja pósta undanfarinna vikna um téð verkefni. Pósturinn var jafnframt einn af fjölmörgum póstum sem ég fékk þá vikuna í tengslum við grunnskólagöngu barnanna minna. Meginsamskiptamáti milli foreldra og skólans er jafnframt Mentor appið þar sem upplýsingar eru settar inn allt að daglega.

Barna- og menntamálaráðherra hefur kynnt áform um að banna snjallsíma í grunnskólum landsins og undirbýr nú frumvarp þess efnis. Undirrituð hafði áður viðrað hugmynd um að banna íþróttamót barna fyrir kl. 10 um helgar, en taldi þó bann við slíku með lögum vera langsótt. Þar sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar virðast hrifnir af boðum og bönnum datt mér hins vegar í hug hvort ofgnótt tölvupósta hefði komið til tals við ríkisstjórnarborðið. Svo mikið er víst að þetta er talsvert rætt meðal foreldra sem ég umgengst og kennarar hafa sömuleiðis lýst því að þeim þyki þrýstingur um upplýsingagjöf orðinn yfirþyrmandi.

Skjánotkun og snjalltækjanotkun barna er sannarlega áhyggjuefni og undirrituð hefur fullan skilning á símabanni sem fjölmargir skólar hafa ákveðið. Hvort símabann í skólum eigi heima í löggjöf er annað mál. Ofangreind tillaga um takmörkun á tölvupóstaflóði kringum grunnskólabörn er sett fram í meira gamni en alvöru. Ég þykist þó vita að um slíkt gæti náðst þverpólitísk samstaða eins og um foreldravænni tíma á íþróttamótum. – En að vísu er sólarupprás á íþróttamóti tilvalinn tími til að fara í gegnum alla vikupóstana.

Greinin birtist fyrst á Vísi.is 11. mars 2025