Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir alþingismaður, fyrrverandi ritari Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og dómsmálaráðherra gefur kost á sér til embættis formanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi flokksins.
Þetta tilkynnti Áslaug Arna í gær.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er fædd í Reykjavík 30. nóvember 1990. Hún lauk stúdentsprófi við Verzlunarskóla Íslands árið 2010, BA-próf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2015 og MA-próf í lögfræði frá sama skóla árið 2017.
Áslaug Arna starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu, lögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurlandi og laganemi á lögmannsstofunni Juris á árunum 2011 til 2016.
Árið 2015 var hún kjörin ritari Sjálfstæðisflokksins og hafði áður gegnt formennsku í Heimdalli, setið í stjórn SUS og miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Hún hefur verið alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 2016 og gengdi formennsku í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, sat í efnahags- og viðskiptanefnd og gengdi formennsku í Íslandsdeild NATO. Síðar gegndi hún formennsku í utanríkismálanefnd Alþingis og formennsku í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins.
Áslaug var skipuð dómsmálaráðherra 6. september 2019 og svo háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra árið 2021-2024. Áslaug situr nú á sínu þriðja kjörtímabili sem þingmaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykvíkurkjördæmi suður.
Heimasíðu framboðsins má finna hér.