15. janúar 2025

Aðalfundur í Dalvíkurbyggð

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Dalvíkurbyggðar verður haldinn á þriðju hæð Ráðhúsi á Dalvík, miðvikudaginn 22. janúar nk. kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi, samkvæmt lögum Sjálfstæðisfélags Dalvíkurbyggðar:

  1. Skýrsla stjórnar, Freyr Antonsson formaður
  2. Reikningsskil, Benedikt Snær Magnússon gjaldkeri
  3. Ákvörðun árgjalds
  4. Lagabreytingar – (engin tillaga á dagskrá)
  5. Kosning formanns og stjórnar
  6. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð Norðausturkjördæmis.
  7. Kosning fulltrúa á 45. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 28. febrúar – 2. mars 2025
  8. Önnur mál

Framboð skal tilkynna til formanns eða gjaldkera Sjálfstæðisfélags Dalvíkurbyggðar.

Freyr Antonsson 897-6076

Benedikt Snær Magnússon 840-7905

Sjálfstæðisfélag Dalvíkurbyggðar