Hildur Sverrisdóttir formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins skipar 2. sæti á lista flokksins í Reykjavík suður:
Það hefur vissulega gengið á ýmsu síðustu ár og allt of oft þurftu stjórnmálin að snúast um viðbragðsstöðu en ekki veginn áfram. En þrátt fyrir allt hefur Ísland komist hvað best út úr þessum viðburðaríku árum í okkar heimshluta.
Við máttum eflaust gera betur í að tala um þetta á mannamáli, hvernig hlutirnir væru og hvernig við værum að komast úr úr þeim. Venjulegt fólk hefur takmarkaðan áhuga á tölfræði og hvernig fólk í öðrum löndum hefur það þegar ótíðindi dynja stanslaust á og íbúðalán jafnt sem matarkarfan í búðinni hækka stöðugt.
Okkur gengur vel að leysa úr vandamálunum
Við heyrum núna talað um alls konar lausnir á vandamálum sem okkur gengur nú þegar ágætlega að leysa. Það vekur mér talsverðan ugg, og þetta er ekki meint sem pólitískur hræðsluáróður heldur persónuleg tilfinning, að lausnirnar sem heyrast mest núna eru lausnir sem hafa verið reyndar áður og aldrei virkað.
Skattar gera líf fólks ekki betra og leysa engan efnahagsvanda. Flókin millifærslukerfi þar sem tekið er úr einum vasa yfir í annan taka súrefni frá atvinnulífinu og samfélaginu. Þau kalla líka yfirleitt á alls kyns plástra til að fela skaðann sem þau valda, sem svo stækka kerfin enn meir og blása út stjórnsýsluna.
ESB sérstaklega galin vegferð nú
Einhliða upptaka Evru og aðild að Evrópusambandinu er varasöm og dýr vegferð ef farið verður að ræða hana af alvöru. Hún er sérstaklega galin nú þar sem okkar leið hér á Íslandi hefur skilað miklu meiri velgengni á alla mælikvarða en í löndunun í Evrópusambandinu.
Hugmyndir um eignaupptöku og gerræðislegar aðgerðir stjórnvalda til að taka af fólki og færa einstökum hópum fé á silfurfati eru svo beinlínis hættulegar í lýðræðissamfélagi.
Vörumst töfralausnir
Það er alveg eðlilegt að fólk hafi ólíka sýn á forgangsröðun og takist á um hugmyndafræði. Vörumst samt að trúa því þegar öllu er stöðugt snúið á versta veg, höfum í huga hvaða hagsmunir liggja að baki.
Vörumst líka að trúa því að til séu töfralausnir á áskorunum samtímans. Þær hafa aldrei verið til og það hefur aldrei reynst vel að reyna þær.
Góðir hlutir gerast hægt, með staðfestu, ákveðnum skrefum og sýnilegum árangri. Ísland er land mannréttinda, frelsis, lífsgæða og tækifæra. Höfum í huga að skrefin hingað voru ekki stigin á einu bretti og alls ekki með því að hrópa hærra en aðrir þegar gaf á bátinn.
„Keep Calm and Carry On”
Bretar notuðu setninguna „Keep Calm and Carry On” á ögurstundu í síðari heimsstyrjöld. Hún snerist um þá einföldu hugsun að láta ekki slá sig út af laginu þótt blési á móti, það væri farsælla að halda jafnaðargeðinu og staðfestunni í gegn um erfiðleikana.
Sú setning á alltaf við þó auðvitað í misalvarlegum aðstæðum sé. Ég vona að okkur Íslendingum beri gæfa til að hugsa málið vel og til enda. Erfiðleikar og áskoranir munu banka upp á í framtíðinni sem endranær. Við þurfum að taka góðar ákvarðanir nú í kosningunum á laugardaginn og svo á veginum fram á við.
Sjálfstæðisflokkurinn, og hugmyndirnar að baki honum, hafa reynst okkur þjóðinni best í góðu og slæmu.
Greinin birtist á visir.is 28. nóvember 2024.