Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins:
Starfsfólk í íslenskri ferðaþjónustu taldi alls 31 þúsund manns árið 2023. Þau störf hafa ekki orðið til úr loftinu einu saman og tilvist þeirra langt því frá sjálfgefin. Mikilvægt er að skapa ferðaþjónustu, sem og öðrum atvinnugreinum, fyrirsjáanlegt og tryggt rekstrarumhverfi. Tryggja þarf að þessi störf verði áfram til og að fleiri, verðmætari störf, verði til í framtíðinni.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur til þess skýra sýn. Nú sem áður leggur flokkurinn áherslu á að auka gæði og tryggja jákvæða upplifun ferðamanna. Skapa forsendur fyrir því að ferðamenn geti dreift sér í auknum mæli á milli ferðamannastaða allt árið um kring, og tengja saman gæði, nýtingu auðlinda, verndun náttúru og upplifun. Til þess er leikurinn gerður.
Er ferðaþjónusta óþrjótandi tekjulind?
Í aðdraganda kosninga hafa vinstri flokkarnir aftur á móti keppt sín á milli um að finna ferðaþjónustunni sem mest til foráttu.
Húsnæðisvandinn er, að þeirra sögn, ferðaþjónustu að kenna, verðbólgan því líka, háa vaxtastigið og svo mætti áfram telja. Vinstrið hefur lagt til ýmsar „lausnir” á þessum meinta ferðaþjónustuvanda íslensku þjóðarinnar. Þar er meðal annars að finna hugmyndir um tómthússkatt, auðlindagjöld á ferðamenn, hækkun virðisaukaskatts, og komu- og brottfaragjöld. Svo margar eru hugmyndirnar til skattpíningar að ætla má að helsta markmið vinstri flokkanna sé að kæfa íslenska ferðaþjónustu - draga úr henni allan þrótt.
Ferðaþjónusta skilaði um 155 milljörðum í skatttekjur árið 2022, er ekki nóg komið? Það getur verið skynsamlegt að leggjast í breytingar, og ef til vill hagkvæmara að beita tækjum álagsstýringar við sókn á náttúruperlur. Það verður hins vegar ekki gert með hækkun skatta eða nýjum gjöldum.
Sjálfstæðisflokkurinn horfir á heildarmyndina. Ljóst er að samhliða breytingum þarf að horfa til þess að afnema aðra sértæka skattlagningu. Ella er samkeppnishæfni Íslands og íslenskra fyrirtækja ógnað.
Andrými til vaxtar
Sjálfbær vöxtur ferðaþjónustu, og annarra atvinnugreina, í takt við samfélagið allt er æskilegur fyrir okkur öll. Nauðsynlegt er að tryggja íslenskum fyrirtækjunum andrými til að vaxa. Gleymum því ekki að hærri skattar hafa áhrif sem geta verið bæði umfangsmikil og kostnaðarsöm, þótt þeir hljómi stundum skaðlausir og bitni kannski bara á einhverjum öðrum en okkur sjálfum.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur sem fyrr áherslu á að ryðja brautina til frekari lífskjaravaxtar með fyrirsjáanleika, festu og lægri sköttum - öllum til heilla. Öflugt atvinnulíf er enda forsenda velferðar fyrir okkur öll.
Greinin birtist á Vísi 26. nóvember 2024.