Eldri borgarar. Takið eftir
'}}

Sigurður Ágúst Sigurðsson formaður Félags eldri borgara í Reykjavík (FEB) og skipar 7. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður.

Framundan eru kosningar til Alþingis 30. nóvember n.k. Stjórnmálaflokkar eru að birta þessa dagana stefnumál sín og línurnar farnar að skýrast. Við getum því farið að mynda okkur skoðanir m.t.t. hvað eldri borgurum kemur best.

Ég, formaður FEB (Félag eldri borgara í Reykjavík) gaf kost á mér í 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík . Tilgangurinn að hafa áhrif á stefnumál flokksins með áherslu á vellíðan eldri borgara og vinna að því að þeir hafi svigrúm til að vinna, hafi þeir heilsu til. Nú er það að raungerast.

Stefna Sjálfstæðisflokksins í málefnum aldraða er m.a. eftirfarandi:

  • Hækka frítekjumark ellilífeyris almannatrygginga vegna atvinnutekna í 350 þúsund krónur á mánuði.
  • Hækka frítekjumark fjármagnstekna í 500 þúsund krónur og hætta að skattleggja verðbólgu.
  • Helminga erfðafjárskatt og fjórfalda frítekjumarkið í 20 milljónir.
  • Efsta þrep skattkerfisins miðist við tvöfaldar meðaltekjur.
  • Afnema stimpilgjöld vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði.

Allt þetta hafa verið baráttumál félaga eldri borgara landsins til langs tíma án árangurs – þangað til núna.

Ljóst er að bæta þarf lífskjör þeirra sem aðeins fá greiddan grunnlífeyrir frá TR og miðað verði við lægstu laun Starfsgreinasambands Ísland sem eru í dag 425 þúsund krónur. Viðmið TR er hins vegar aðeins 330 þús. krónur. Þarna munar um 90 þús. krónum og eykst í 102 þús. krónur í byrjun næsta árs. Skerðingar TR varðandi tekjur umfram grunnlífeyrir eru 45 aurar á móti 1 aflaðri krónu. Þetta ber að fella út.

Á annað þúsund einstaklingar búa við slæm kjör og mikilvægast af öllu að úr því verði bætt sem fyrst. Í raun býr þetta sama fólk við fátæktarmörk. Ég mun leggja áherslu á að þarna verði gerðar breytingar fái ég stuðning ykkar í komandi kosningum

Sjálfstæðisflokkurinn boðar skattalækkanir. Vinstri flokkarnir boða SKATTAHÆKKANIR. Svo breytingarnar komist í gegn þarf Sjálstæðisflokkurinn að fá sterka kosningu 30. nóv.

Kæri kjósandi, okkar er valið.

Greinin birtist á visir.is 20. nóvember 2024.