Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður:
Vextir eru ekki bara tölur á blaði. Lágir vextir gera fjölskyldum kleift að blómstra, fyrirtækjum að fjárfesta og samfélögum að dafna. Ódýrara fjármagn veitir súrefni inn í hagkerfið, skapar tækifæri og hvetur til nýsköpunar. Í morgun lækkuðu vextir um 50 punkta eða 0,5%. Hjöðnun verðbólgu er á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hefur einnig minnkað. Þá hafa verðbólguvæntingar almennt lækkað.
Þó vaxtalækkanir Seðlabankans virðist oft teknar í hænuskrefum er það svo að fyrir hverja lækkun stýrivaxta um aðeins hálft prósent, lækka afborganir af 50 milljóna króna óverðtryggðu jafngreiðsluláni um 25 til 30 þúsund krónur á mánuði. Vextir á slíkum lánum eru í kringum 10,5 prósent sem sakir standa. Ef þessir sömu vextir lækka, svo dæmi sem tekið, niður í 8 prósent - eykst ráðstöfunarfé lántaka um 100 þúsund krónur á mánuði.
Aðstæður til rösklegra vaxtalækkana hafa þegar skapast. Vonir standa til að vaxtalækkunarferli Seðlabankans muni halda áfram jafnt og þétt næstu mánuði, samfara því að ofhitnun vinnu- og húsnæðismarkaðar gengur til baka. En til þess að svo megi verða þarf að halda rétt á spöðunum.
Heimsfaraldur og eldsumbrot hafa sannarlega reynt á efnahagslíf okkar undanfarin ár og ýtt undir hærri vexti en við getum sætt okkur við. Nú liggur hins vegar fyrir að við erum á réttri leið og getum gert enn betur.
Kjósum áframhaldandi vaxtalækkanir
Sjálfstæðisflokkurinn leggur nú höfuðáherslu á ábyrgð í ríkisfjármálum og hafnar aukinni skattheimtu. Aðalverkefni stjórnmálamanna er að skapa aðstæður sem draga úr almennum fjármagnskostnaði, að kjör heimila batni og rekstrarskilyrði fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum verði betri. Við viljum tryggja að hinn frjálsi markaður fái að njóta sín til fulls, við viljum styðja við okkar mikilvægustu atvinnugreinar og huga að því að hagkerfið vaxi með sjálfbærum hætti. Þetta eru öllu jöfnu þeir þættir sem við getum sjálf stjórnað.
Nú blasir við að Viðreisn, flokkur sem hefur viljað skilgreina sig sem borgaralegan flokk á miðjunni, ætlar sér í samstarf með Samfylkingunni og saman ætla þessir flokkar að koma Íslandi í Evrópusambandið þar sem atvinnuleysi er í hæstu hæðum en hagvöxtur lélegur. Við blasir að eina leiðin til að koma í veg fyrir slíka ríkisstjórn er að Sjálfstæðisflokkurinn hljóti brautargengi í komandi kosningum.
Við þekkjum af reynslunni að vinstri stjórn mun auka ríkisútgjöld, hækka skatta og ýta undir frekari verðbólguþrýsting - ýmist með aðgerðum eða aðgerðarleysi. Ekki þarf að leita langt til að finna dæmin. Stjórn vinstri flokkanna í Reykjavík hefur með misheppnaðri skipulagsstefnu til að mynda ýtt undir miklar hækkanir á húsnæðisverði með tilheyrandi dýrtíð fyrir venjulegt, vinnandi fólk.
Ísland er í kjöraðstæðum nú til að skapa betri skilyrði fyrir stöðugleika með lágum vöxtum og lægri verðbólgu.
Við erum á réttri leið og nú er tækifæri til að ná árangri. Förum ekki út af sporinu.
Kjósum áframhaldandi vaxtalækkanir.
Greinin birtist á visir.is 20. nóvember 2024.