Sjálf­stæðis­flokkurinn vill af­nema skyldu til jafnlaunavottunar!
'}}

Diljá Mist Einarsdóttir alþingismaður, skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík norður:

Einn frasanna sem flæða af vörum Viðreisnarfólks þessa dagana er um „einfaldara líf“. Betra væri ef sá gállinn hefði verið á þeim þegar Viðreisn var í ríkisstjórn. En einhverjir hafa gleymt stuttri viðveru flokksins við stjórnvölinn í landsmálunum. Flokkurinn er þekktari fyrir hlutverk sitt við stjórnun Reykjavíkurborgar undanfarin ár með misjöfnum árangri. Á þeim stutta tíma sem Viðreisn kom að landsstjórninni náði flokkurinn þó í gegn sínu helsta baráttumáli, jafnlaunavottun. Þetta fyrsta þingmál Viðreisnar kallaði flokkurinn „lykilinn að frjálsum vinnumarkaði“. Ég þekki ófáa atvinnurekendur sem verður bylt við, við þessa upprifjun.

Jafnlaunavottun er skaðvaldur

Við sjálfstæðismenn lögðum fram frumvarp um að þessi dyggðaskreyting ætti að vera valkvæð, en ekki skylda fyrir atvinnulífið. Rannsóknir sýna enda að það mælist enginn marktækur launamunur á fyrirtækjum og stofnunum sem hlotið hafa jafnlaunavottun og öðrum. Þá hafa, frá lögfestingu jafnlaunavottunar, ítrekað komið fram dæmi um að vinnustaðir geta komist upp með að mismuna starfsfólki í launakjörum. En samt hafa þeir stimpil frá ríkinu um að allt sé upp á tíu hjá þeim í jafnlaunamálum. Formaður Læknafélags Íslands gengur svo langt að segja þetta kerfi veiti falskt öryggi fyrir jöfnum launum. Jafnlaunavottun er því ekki bara kostnaðarsamur baggi á atvinnulífinu og opinberum stofnunum sem skilar engum marktækum árangri; hún er hreinn skaðvaldur.

Einfaldara (atvinnu)líf án Viðreisnar?

Flokkurinn sem svo gjarnan kennir sig við atvinnulífið hafði litlar áhyggjur af kostnaði sem jafnlaunavottun lagði á atvinnurekendur við lögfestingu hennar. Stjórnendur fyrirtækja nefna þó kostnað við ferlið sem eitt þess sem þykir mest íþyngjandi við jafnlaunavottun. Viðbrögð þingmanna Viðreisnar við þingmáli sjálfstæðismanna voru að verja kerfið. Þeir hafa gengið svo langt, þvert á niðurstöður rannsókna, að fullyrða að lögin tryggi launajafnrétti. Við sjálfstæðismenn viljum gera alvöru átak í að létta byrðum af atvinnulífinu. Við viljum raunverulega einfaldara líf fyrir íslenska atvinnurekendur.

Sjálfstæðisflokkurinn vill afnema skyldu til jafnlaunavottunar.

Greinin birtist á visir.is 19. nóvember 2024.