Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:
Á því er ekki nokkur vafi að nýsköpun á sviði heilbrigðismála getur létt á álagi á opinbera heilbrigðiskerfinu og starfsmönnum þess auk þess að stórbæta þjónustu til landsmanna. Raunin er þó sú að nýsköpunarfyrirtæki í heilbrigðisgeiranum hafa mætt viðvarandi hindrunum undanfarin ár af hálfu opinberra stofnana - þá sérstaklega embætti Landlæknis.
Það skýtur því vægast sagt skökku við að Samfylkingin tefli landlækni fram í oddvitasæti og kynni sig sem flokk með „útspil“ um öruggt heilbrigðiskerfi, á meðan dæmin sýna að aðgangshindranir og einokun hafa ráðið för sem þvert á móti vegur að öryggi heilbrigðiskerfisins.
Embætti landlæknis hefur nýlega synjað fyrirtækjunum Greenfit og Intuens um leyfi til að bjóða nýjungar í þjónustu til landsmanna, þ.e. blóðmælingar og myndgreiningu án sérstakrar tilvísunar frá lækni, með rökum um mögulegan heilsukvíða einstaklinga og mögulegt falskt öryggi. Þannig telur sá landlæknir (sem nú hefur tekið sér leyfi frá störfum á meðan framboði fyrir Samfylkingunni er sinnt) að einstaklingar eigi ekki að hafa sjálfir frelsi eða ákvörðunarrétt til að afla fyrirbyggjandi upplýsinga um eigin heilsu. Heilbrigðisráðuneytið hefur lagt fyrir landlækni að endurskoða þessar ákvarðanir sínar sökum þess að þær séu of íþyngjandi og brjóti í bága við lög.
Heilbrigðiskerfi í fjötrum
Markaðurinn fyrir heilbrigðistækni á Íslandi afar einsleitur, einkum og sér í lagi vegna ofangreindrar afstöðu Landlæknis. Tímamótaúrskurður kærunefndar útboðsmála árið 2022 sýndi fram á að embætti Landlæknis hafi átt milljarða viðskipti við einn einkaaðila á markaði án útboðs í langan tíma. Þau viðskipti hafa valdið tortryggni og skapað hindranir fyrir ný fyrirtæki að bjóða fram sínar lausnir. Embætti landlæknis lét þó ekki staðar numið og stefndi nýsköpunarfyrirtækinu Köru Connect fyrir dómstóla til að fá úrskurði kærunefndarinnar hnekkt.
Aðgerðir landlæknis gegn nýsköpunarfyrirtækjum og í þágu sérhagsmunaaðila - eru skaðlegar fyrir samkeppni, heilbrigðiskerfið og öryggi þess, auk ríkissjóðs. Kemur því ekki á óvart að aðgangshindranir landlæknis undanfarin ár hafi verið kærð til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
Til að nýsköpun nái að blómstra þarf móttækilegt kerfi sem stuðlar að auknu aðgengi nýrra lausna en ekki bannað þær. Til að styðja við innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðiskerfinu kastaði ég út Fléttunni en hún er nýsköpunarstyrkur og með henni gafst heilbrigðisstofnunum um allt land tækifæri til að innleiða og nýta áhugaverðar lausnir til að bæta þjónustu við sjúklinga, stytta biðlista, styðja við betra starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks og auka hagkvæmni og skilvirkni kerfisins. Fléttan er brú á milli einkaframtaksins og heilbrigðiskerfisins.
Við eigum að grípa þau tækifæri sem fylgja nýjum lausnum og tækninni sem getur bætt starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks um leið og þjónusta við sjúklinga og annarra verður betri. Sjálfstæðisflokkurinn vill stuðla að bættu umhverfi fyrir nýsköpunarfyrirtæki á sviði heilbrigðismála, með hagsmuni og heilsufar allra landsmanna að leiðarljósi.
Greinin birtist á Vísi 16. nóvember 2024.