Krónur, evrur og full­veldi
'}}

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra:

Gamlir draugar lifa lengi. Eftir því sem nær dregur kosningum er skýrara að ESB flokkarnir hyggjast endurvekja aðildarviðræður og berjast fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Viljinn við að ganga þar inn snýst aðallega um að krónan sé svo óstöðugur gjaldmiðill. Skoðum það betur.

Íslenska króna hefur í rúman áratug verið mjög stöðug mynt, álíka stöðug og evran og styrkst gagnvart henni. Því höfum við náð með markvissri stefnu um að breikka útflutningstsstoðir, bæta skuldastöðu hagkerfisins og að byggja upp stóran gjaldeyrisforða. Við búum einfaldlega nú þegar við töluverðan gengisstöðugleika. Enda vísa talsmenn evrunnar ekki í nýliðinn tíma heldur fara gjarnan áratugi aftur í tímann í leit að sönnun fyrir gengissveiflum krónunnar.

En hvað er svona miklu betra í ESB? Eru launin hærri? Aldeilis ekki. Fleiri störf? Þvert á móti, atvinnuleysi ungs fólks á evrusvæðinu er tæplega 15%. Staðreyndin er sú að ESB og evrusvæðið sitja eftir og samkeppnishæfni svæðisins fer dvínandi. Afleiðingin er lítill hagvöxtur. Til samanburðar hefur hagvöxtur á Íslandi verið hátt í þrefalt hraðari frá 2013 eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Hagvöxtur sem hefur skapað störf og leitt til þess að kaupmáttarvöxtur hér er margfalt hraðari en í ESB.

Okkar hagsmunamat fyrir Íslendinga er einfalt: Okkur er best borgið utan Evrópusambandsins en áfram í þéttu samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir í EES. Íslendingum hefur farnast vel utan sambandsins og þar eru blikur á lofti með mjög veikum efnahagshorfum. Vandamálið okkar er of hátt vaxtastig, sem er tekið að lækka og mun lækka áfram, líklega í næstu viku. Í því eru engar töfralausnir hvort sem gjaldmiðillinn kallast evra, króna eða tælenskt bat.

Þeir sem boða breytingar á sambandi Íslands við ESB segjast vilja dóm kjósenda í málinu. Næsta tækifæri kjósenda er 30. nóvember. Sjálfstæðisflokkurinn styður ekki aðild Íslands að ESB. Af þeirri augljósu ástæðu styður flokkurinn ekki að aðildarviðræður við ESB fari af stað að nýju. ESB flokkarnir Samfylking og Viðreisn ætla að setja málið á dagskrá fái þeir til þess umboð. Til að fara í atkvæðagreiðlsu þurfa þeir meirihluta í þinginu og pólitískan vilja til að leiða Ísland í framhaldinu inn í ESB, sé það niðurstaða atkvæðagreiðslunnar.

Flokkarnir virðast hafa tapað trú á stöðu, styrk og tækifærum íslensku þjóðarinnar sem frjálsrar, sjálfstæðrar og fullvalda þjóðar. Það hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki gert og mun aldrei gera.

Greinin birtist á Vísi 15. nóvember.