Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:
Stjórnmálaflokkar keppast nú við að kynna áherslur í húsnæðismálum í aðdraganda þingkosninga. Þó tilvonandi þingmenn lofi margvíslegum aðgerðum á húsnæðismarkaði er veruleikinn sá að sveitarstjórnarstigið gegnir veigamiklu hlutverki við húsnæðisuppbyggingu. Það er á valdi sveitarfélaga að úthluta landi, skipuleggja hverfi og útdeila byggingaheimildum.
Samfylkingin hefur nú boðað bráðaaðgerðir á húsnæðismarkaði og hyggst fjölga íbúðum um 2.000 árlega, umfram það sem núverandi áætlanir gera ráð fyrir. Samfylkingin hefur hins vegar frá stofnun flokksins setið nær óslitið við völd í Reykjavíkurborg. Höfuðborgin er vitanlega stærsta sveitarfélag landsins og hefur því langmest áhrif allra sveitarfélaga á stöðu húsnæðismála. Það er því nærtækt að spyrja: Hefur flokkurinn einhvern trúverðugleika í málaflokknum?
Hefur meirihlutinn í borgarstjórn trúverðugleika í húsnæðismálum?
Í aðdraganda síðustu borgarstjórnarkosninga lofaði Samfylkingin uppbyggingu 2.000 íbúða árlega í Reykjavík. Þáverandi borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, undirstrikaði raunar áformin með sérstöku samkomulagi við ríkisvaldið. Samkvæmt nýlegri talningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru hins vegar aðeins 877 íbúðir á framkvæmdastigi í borginni um þessar mundir. Árið 2023 voru aðeins 874 íbúðir fullbyggðar í Reykjavík. Ekkert gengur að efna loforðin. En það er gömul saga og ný úr ranni meirihlutans í borgarstjórn.
Ef Reykjavíkurborg hefði byggt jafn ört og nágrannasveitarfélög undanfarinn áratug hefðu byggst upp 6.000 fleiri íbúðir í Reykjavík en raun ber vitni. Meirihlutinn í borginni, með Samfylkingingu, Viðreisn, Pírötum og Framsókn í forystu, hefur hins vegar rekið einstrengingslega þéttingarstefnu um árabil sem hamlað hefur nægilega öflugri húsnæðisuppbyggingu. Verktakar hafa kallað eftir frekara lóðaframboði en ekki hlotið áheyrn meirihlutans í Reykjavík. Seðlabankinn, Samtök iðnaðarins og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn eru dæmi um aðila sem bent hafa á alvarlegar afleiðingar skortstefnu Samfylkingarinnar í húsnæðismálum.
Fleiri íbúðir, lægra íbúðaverð
Sjálfstæðisflokkurinn stendur vörð um séreignarstefnuna og hyggst ryðja í burtu hindrunum sem standa í vegi fyrir því að einstaklingar geti eignast eigið húsnæði. Í því felst að byggt verði hraðar, meira og hagkvæmar. Við ætlum ekki að leyfa meirihlutanum í borgarstjórn Reykjavíkur að ýta upp húsnæðisverði með viðvarandi framboðsskorti. Sú þröngsýna nálgun hefur um árabil komið í veg fyrir möguleika ungs fólks til að eignast eigið húsnæði. Við þurfum að brjóta nýtt land og útvíkka vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins. Frumskylda stærsta sveitarfélagsins ætti að vera að tryggja nægt lóðaframboð. Þeirri frumskyldu hefur meirihlutinn í borgarstjórn brugðist.
Húsnæðismálin eru eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar. Að eiga möguleika á því að koma þaki yfir höfuðið skiptir okkur öll máli. Rót verðbólguvandans liggur í þeim húsnæðisskorti sem meirihlutinn í borginni undir forystu Samfylkingarinnar hefur átt stærstan þátt í að skapa. Við þurfum að láta af viðvarandi skortstefnu og þröngsýni, og ráðast í umfangsmikla húsnæðisuppbyggingu um land allt. Aukið framboð er eina varanlega lausnin á áskorunum húsnæðismarkarins.
Greinin birtist á visir.is 12. nóvember 2024.