Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fundaði í kvöld og afgreiddi heildarlista fyrir komandi alþingiskosningar.
Til viðbótar við þau fjögur sæti sem raðað var í síðastliðinn sunnudag var skipað í 5. - 28. sæti. Jón Gunnarsson alþingismaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra skipar 5. sæti listans. Árni Helgason lögmaður skipar 6. sæti listans, Ragnhildur Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi skipar 7. sætið og Viktor Pétur Finnsson formaður SUS og háskólanemi skipar 8. sætið. Óli Björn Kárason alþingismaður og fyrrverandi formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins skipar heiðurssæti listans.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í heild:
- Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, Garðabæ
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, Kópavogi
- Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður, Mosfellsbæ
- Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri, Hafnarfirði
- Jón Gunnarsson, alþingismaður, Kópavogi
- Árni Helgason, lögmaður, Seltjarnarnesi
- Ragnhildur Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Seltjarnarnesi
- Viktor Pétur Finnsson, formaður SUS, háskólanemi, Hafnarfirði
- Sunna Sigurðardóttir, deildarstjóri, Garðabæ
- Jana Katrín Knútsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Mosfellsbæ
- Ragnhildur Sophusdóttir, forstöðumaður, Kópavogi
- Halla Sigrún Mathiesen, verkefnastjóri, Hafnarfirði
- Birkir Guðlaugsson, lögfræðingur, Garðabæ
- Eva Björk Harðardóttir, hótelstjóri, Hafnarfirði
- Birgir Leifur Hafþórsson, fyrrv. atvinnukylfingur, Garðabæ
- Sigríður Marta Harðardóttir, eigandi Elley, Seltjarnarnesi
- Óskar Örn Ágústsson, fjármálastjóri, Mosfellsbæ
- Þorvarður Hrafn Ásgeirsson, sagnfræðingur, Kópavogi
- Diana Björk Olsen, deildarstjóri, Hafnarfirði
- Vigdís Gunnarsdóttir, lögfræðingur/MBA, Garðabæ
- Bjarni Th. Bjarnason, rekstrarhagfræðingur, Garðabæ
- Kristján Jónas Svavarsson, stálvirkjasmíðameistari, Hafnarfirði
- Birta Guðrún Helgadóttir, nemi, Kópavogi
- Bogi Jónsson, bæklunarskurðlæknir, Garðabæ
- Hólmar Már Gunnlaugsson, sjómaður, Grindavík
- Ingimar Sigurðsson, vátryggingaráðgjafi, Seltjarnarnesi
- Elísabet S. Ólafsdóttir, sáttamiðlari, Mosfellsbæ
- Óli Björn Kárason, alþingismaður, Seltjarnarnesi