Telma Ósk Þórhallsdóttir skipar 5. sæti í Norðausturkjördæmi

Telma Ósk Þórhallsdóttir var rétt í þessu kjörin í 5. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar 30. nóvember nk.

Kjördæmisráðið samþykkti fyrr í dag að viðhafa röðun við efstu 5 sæti á framboðslistanum.