Listi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi einróma samþykktur

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi samþykkti einróma framboðslista flokksins við komandi alþingiskosningar á fjölmennasta fundi sem haldinn hefur verið í ráðinu frá stofnun á Selfossi nú á fjórða tímanum í dag.

Efstu sex sætin á listanum byggjast á röðun sem fram fór fyrr í dag og sæti 7-20 á tillögu kjörnefndar.

  1. sæti Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra Hveragerði
  2. sæti Vilhjálmur Árnason alþingismaður og ritari Sjálfstæðisflokksins Grindavík
  3. sæti Ingveldur Anna Sigurðardóttir lögfræðingur og varaþingmaður Rangárþingi eystra
  4. sæti Gísli Stefánsson bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri Vestmannaeyjum
  5. sæti Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur Svf. Árborg
  6. sæti Guðbergur Reynisson bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri Reykjanesbæ
  7. sæti Kristín Traustadóttir viðskiptafræðingur Svf. Árborg
  8. sæti Gauti Árnason forseti bæjarstjórnar Svf. Hornafirði
  9. sæti Írena Gestsdóttir viðskiptafræðingur Svf. Ölfusi
  10. sæti Logi Þór Ágústsson laganemi Reykjanesbæ
  11. sæti Björk Grétarsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi og stjórnmálafræðingur Rangárþingi ytra
  12. sæti Hafþór Ernir Ólason framhaldsskólanemi Suðurnesjabæ
  13. sæti Gígja Guðjónsdóttir flugfreyja og uppeldis- og menntunarfræðingur Reykjanesbæ
  14. sæti Jón Bjarnason oddviti og bóndi Hrunamannahreppi
  15. sæti Rut Haraldsdóttir viðskiptafræðingur Vestmannaeyjum
  16. sæti Sveinn Ægir Birgisson formaður bæjarráðs Svf. Árborg
  17. sæti Sigrún Inga Ævarsdóttir samskipta- og markaðsstjóri Reykjanesbæ
  18. sæti Einar Jón Pálsson bæjarfulltrúi Suðurnesjabæ
  19. sæti Bjarki V. Guðnason sjúkraflutningamaður Skaftárhreppi
  20. sæti Birgir Þórarinsson alþingismaður Vogum