Jens Garðar Helgason leiðir lista flokksins í Norðausturkjördæmi

Jens Garðar Helgason mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í kosningum til Alþingis sem fram fara laugardaginn 30. nóvember 2024.

Nú stendur yfir fundur í kjördæmisráði flokksins í Norðausturkjördæmi þar sem stuðst er við röðun við val á efstu 5 sætum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu.