Ingveldur Anna Sigurðardóttir lögfræðingur og varaþingmaður er í 3. sæti á framboðlista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi kosningar til Alþingis 30. nóvember næstkomandi.
Kjördæmisráðið samþykkti fyrr í dag einróma að viðhafa röðun við efstu 6 sæti á framboðslistanum. Þrír sóttust eftir þriðja sæti, Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, Birgir Þórarinsson, alþingismaður og Ingveldur Anna Sigurðardóttir sem hlaut flest atkvæði.