Guðbergur Reynisson bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og framkvæmdastjóri skipar 6. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Kjördæmisráðið samþykkti fyrr í dag einróma að viðhafa röðun við efstu 6 sæti á framboðslistanum og voru tvö í kjöri í 6. sætið; Elín Káradóttir og Guðbergur Reynisson.
Efstu 6 sæti á listanum eru því svohljóðandi eftir röðun:
- Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra
- Vilhjálmur Árnason alþingismaður og ritari Sjálfstæðisflokksins
- Ingveldur Anna Sigurðardóttir lögfræðingur og varaþingmaður
- Gísli Stefánsson bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri
- Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur
- Guðbergur Reynisson bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri
Á dagskrá fundarins liggur fyrir að kjörnefnd geri tillögu að sætum 7-20 á listanum sem verður afgreidd síðar í dag.