Gísli Stefánsson bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum og framkvæmdastjóri Landakirkju skipar 4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir þingkosningar 30. nóvember næstkomandi.
Kjördæmisráðið samþykkti fyrr í dag einróma að viðhafa röðun við efstu 6 sæti á framboðslistanum og var Gísli einn í kjöri í 4. sætið og því sjálfkjörinn.
Aðrir sem þegar hefur verið ákveðið að skipi framboðslistann eru:
1. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra
2. Vilhjálmur Árnason alþingismaður og ritari Sjálfstæðisflokksins
3. Ingveldur Anna Sigurðardóttir lögfræðingur og varaþingmaður.