Bryndís Haraldsdóttir skipar 3. sæti í Suðvesturkjördæmi

Bryndís Haraldsdóttir mun skipa 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í kosningum til Alþingis sem fram fara laugardaginn 30. nóvember 2024.

Nú stendur yfir fundur í kjördæmisráði flokksins þar sem stuðst er við röðun við val á efstu 4 sætum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu.