Bjarni Benediktsson sjálfkjörinn oddviti í Suðvesturkjördæmi

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var rétt í þessu á afar fjölmennum fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Valhöll sjálfkjörin oddviti flokksins í kjördæminu fyrir komandi þingkosningar 30. nóvember næstkomandi.

Kjördæmisráðið samþykkti fyrr í dag að viðhafa röðun við efstu 4 sæti á framboðslistanum og var Bjarni einn í kjöri um 1. sætið.