Fundir boðaðir um val á lista í Norðausturkjördæmi

Stjórn kjördæmisráðs Norðausturkjördæmis boðar til fundar í kjördæmisráði sunnudaginn 20. október kl. 11:00 á Skjólbrekku, Mývatni. Skráning inn á fundinn hefst kl. 10:30.

Fyrir fundinum liggur annars vegar tillaga stjórnar kjördæmisráðs um að viðhafa röðun við val á efstu 5 sætum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins við næstu alþingiskosningar, og að fela kjörnefnd að gera tillögu að fullskipuðum framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.

Þá boðar stjórn kjördæmisráðs til annars fundar kl. 13:00 sunnudaginn 20. október nk. í Skjólbrekku, Mývatni, þar sem röðun um efstu 5 sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi verður framkvæmd, með fyrirvara um samþykki fyrri fundar sama dag. Kosið er um eitt sæti í einu.

Fundargjald er 4.500 kr. Innifalið er súphlaðborð á Selhóteli, fundarkaffi og létt fundarkaffi um kl. 14:30 og fundargögn.