Fundir boðaðir um val á lista í Suðvesturkjördæmi

Stjórn kjördæmisráðs Suðvesturkjördæmis boðar til fundar í kjördæmisráði sunnudaginn 20. október kl. 13:00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1, Reykjavík. Skráning inn á fundinn hefst kl. 12:15.

Fyrir fundinum liggur tillaga stjórnar um að viðhafa röðun við val á efstu 4 sætum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins við næstu alþingiskosningar og að fela kjörnefnd að gera tillögu að fullskipuðum framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.

Þá boðar stjórn kjördæmisráðs til annars fundar sunnudaginn 20. október kl. 14:00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1, þar sem röðun um efstu 4 sæti á framboðslista flokksins í Suðvesturkjördæmi verður framkvæmd, með fyrirvara um samþykki fyrri fundar sama dag.