Fundir boðaðir um val á lista í Suðurkjördæmi

Stjórn kjördæmisráðs Suðurkjördæmis boðar til fundar í kjördæmisráði sunnudaginn 20. október kl. 11:30 á Hótel Selfoss. Skráning inn á fundinn hefst kl. 11:30.

Fyrir fundinum liggur annars vegar tillaga stjórnar kjördæmisráðs um að viðhafa röðun við val á efstu 6 sætum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins við næstu alþingiskosningar og að fela kjörnefnd að gera tillögu að fullskipuðum framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.

Þá boðar stjórn kjördæmisráðs til annars fundar sunnudaginn 20. október kl. 13:00 á Hótel Selfoss, þar sem röðun um efstu 6 sæti á framboðslista flokksins í Suðurkjördæmi verður framkvæmd, með fyrirvara um samþykki fyrri fundar sama dag. Kosið er um eitt sæti í einu.

Fundargjald er 3.500 kr. Innifalið er súpa, kaffi og fundargögn.