JL Gettó
'}}

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur:

Nú berast fregnir af því að 400 umsækjendur um alþjóðlega vernd skuli hafa búsetu í JL húsinu í Vesturbæ. Það þykir mér varhugaverð ráðstöfun. Við þurfum ekki að líta lengra en til annarra sveitarfélaga hérlendis, eða nágrannalanda, eftir dæmum sem sanna að fyrirkomulagið mun mislukkast. Það mun hvorki verða til góðs fyrir þá 400 einstaklinga sem verður gert að búa við þessar aðstæður, né heldur samfélagið í nærumhverfinu.

Það hefur hingað til verið stefna flestra sveitarfélaga hérlendis að tryggja heilbrigða blöndun ólíkra þjóðfélagshópa innan sérhvers hverfis. Þannig megi betur koma í veg fyrir einangrun tiltekinna hópa frá samfélaginu. Barn í erfiðri félagslegri stöðu – hvort sem um ræðir flóttabarn eða fátækt íslenskt barn – getur almennt betur notið tækifæra og ávaxta eigin erfiðis, búi það við blönduð skilyrði fremur en einangrandi og einsleit. Hið sama má segja um fullvaxta fólk.

Ísland á nokkuð merka sögu hvað varðar mótttöku innflytjenda og fólks á flótta. Innflytjendur eru nú ómissandi hluti af þjóðlífi okkar og efnahag. Auðsóttasta dæmið eru innflytjendur af pólskum uppruna sem hafa aðlagast íslensku samfélagi með sóma. Við tókum jafnframt við flóttafólki á árum áður, t.d. frá stríðinu á Balkansskaga. Því fólki var dreift um þorp og sveitir, það aðlagaðist bæjarlífinu vel og hefur margt hvert búið hér síðan - auðgað samfélag okkar og gert okkur kleift að njóta hæfileika þess og afurða.

Útlendingamálin eru nú einhver flóknustu viðfangsefnin hérlendis. Kostnaður við hælisleitendakerfið vex ár frá ári og krafa samfélagsins um skynsamlega nálgun á málefnið verður æ háværari. Gettó í JL húsinu sem samsvarar tæplega 10% af íbúafjölda Seltjarnarnessbæjar getur ekki talist svar við því ákalli. Úrræðum af þessum toga þarf að dreifa betur, sé ætlunin að hafa þau innan rótgróinna íbúahverfa.

Ég vil sannarlega búa í samfélagi sem leggur sitt af mörkum við móttöku fólks á flótta - en engu samfélagi ferst vel að gera meira en það ræður við. Við þurfum að tryggja að þeim sem við tökum á móti séu búin rétt skilyrði, svo þau geti notið hæfileika sinna og hámarkað eigin tækifæri - og við fengið notið krafta þeirra.

Greinin birtist á Vísi 7. október 2024.