Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, íbúar í Grafarvogi:
Meirihlutinn í Reykjavíkurborg hefur kynnt áform um þéttingu byggðar í Grafarvogi. Áformin fela í sér að 500 íbúðir muni rísa þar á næstu árum, en fyrirvari er þó gerður um íbúasamráð og athugasemdir frá nærumhverfi. Fjölmargir íbúar Grafarvogs hafa lýst miklum áhyggjum af þessum áformum og hafa hrundið af stað undirskriftasöfnun. Meðal áhyggja íbúa eru að þéttingin muni skerða aðgang að útivistarsvæðum og þrengi að starfsemi skóla í hverfinu. Þá hafa íbúar lýst áhyggjum af aukinni umferð og áformin falli ekki að byggð sem þegar er til staðar í hverfinu.
Skilningsleysi meirihlutans gagnvart úthverfum borgarinnar hefur einkennt stjórnarfar hans. Það getur skaðað lífsgæði íbúanna verulega þegar ákvarðanatakan er í höndum fólks sem þekkir þessi samfélög ekki. Mikilvægt er að virkt samtal og samráð verði við Grafarvogsbúa um byggingaráformin í þessu rótgróna hverfi sem hefur svipaðan íbúafjölda og Akureyrarbær.
Undirrituð hafa búið í Grafarvogi í áratugi og þekkja því hverfið mjög vel. Þótt þétting byggðar, þetta aðalstefnumál meirihlutans, geti átt rétt á sér við ákveðnar aðstæður, er mikilvægt að hún eigi sér ekki stað nema í fullu samráði og sátt við íbúana hverfanna sem um ræðir. Áhyggjur okkar snúa að því að þeir sem stýri borginni skilji ekki að fólk búi í Grafarvogi sem flutti þangað einmitt vegna gerðar og gæða hverfisins. Tæplega var það nálægðin við miðbæinn sem heillaði, en grænu svæðin í Grafarvogi spila á hinn bóginn klárlega stórt hlutverk. Við þurfum að standa vörð um græn svæði borgarinnar og þau mega ekki víkja fyrir yfirgengilegum þéttingaráformum um alla borg. En víða í borginni rísa nú gróðurlitlir steinsteypuskógar. Hver verður dómur framtíðarinnar um þá?
Sömu sögu má segja um byggingaráform á Keldum. Þar vill meirihlutinn í borgarstjórn reisa byggð í hróplegu ósamræmi við Grafarvogshverfið sem myndi nær tvöfalda íbúafjöldann á mjög litlu svæði ef áformin ganga eftir. Þar á sömuleiðis að ganga freklega á græn svæði og náttúruminjar sem þar eru fyrir.
Við höfum viðrað þessar áhyggjur Grafarvogsbúa við borgaryfirvöld og á vettvangi þingsins og munum halda áfram að gæta hagsmuna hverfisins okkar. Við stjórnmálamenn og hugmyndir okkar erum nefnilega til fyrir fólkið og íbúana, ekki öfugt.
Greinin birtist fyrst á Vísi 7. október 2024