Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Langholtshverfi

Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Langholtshverfi verður haldinn miðvikudaginn 18. september nk. í Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 17:00.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
  2. Reikningsskil.
  3. Skýrslur nefnda.
  4. Kjör stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna reikningsskila.
  5. Kjör fulltrúa í Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
  6. Tillögur um lagabreytingar.
  7. Önnur mál.

Framboðum til stjórnar skal skilað í tölvupósti á netfangið jonb@xd.is fyrir kl. 17:00, sunnudaginn 15. september.

Stjórn Félags sjálfstæðismanna í Langholtshverfi