Varist eftir­líkingar
'}}

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur:

Í gærdag steig borgarstjóri fram á ritvöllinn með sína fyrstu yfirlýsingu um breytingar í borginni, rúmum tveimur árum eftir kjör hans í borgarstjórn. Breytingarnar sagði hann felast í stórbættum fjárhag Reykjavíkur í kjölfar aðhaldsaðgerða. Þetta kallar á nánari skoðun.

Viðsnúningur sóttur í vasa skattgreiðenda

Þó borgin skili sannarlega jákvæðri rekstrarniðurstöðu á fyrstu sex mánuðum ársins, reynist hún þó 1,7 milljörðum lakari en áætlun gerði ráð fyrir. Þessi jákvæða rekstrarniðurstaða væri sannarlega fagnaðarefni hefði hún náðst með hagræðingum og aðhaldi. Raunin er hins vegar sú að skatttekjur borgarinnar aukast um 5,1 milljarð milli ára og fara 1,1 milljarð umfram áætlun fyrstu sex mánuði ársins. Þessi svokallaði viðsnúningur borgarstjóra er sóttur beint í vasa borgarbúa.

Má þar aðallega vísa til þess hvernig meirihlutinn sætti færis þegar gríðarlegar hækkanir fasteignamats leiddu til samsvarandi hækkana á krónutölu fasteignaskatta síðustu ár. Nágrannasveitarfélög brugðust við hækkunum fasteignamats með lækkun álagningarhlutfalla á sína íbúa. Meirihlutinn í Reykjavík felldi hins vegar tillögur okkar sjálfstæðismanna um samsvarandi skattalækkanir.

Með því að halda sköttum í Reykjavík hærri en í Kópavogi sækir borgin um 2,4 milljarða árlega í auknar skatttekjur – beint úr vösum fólks og fyrirtækja í Reykjavík.

Reksturinn sífellt dýrari

Borgarstjóri lét jafnframt hjá líða að nefna stöðugan útgjaldavöxt borgarinnar undir hans stjórn. Hafa rekstrargjöld aukist um ríflega sex milljarða milli ára og farið nærri 2,5 milljarða umfram áætlun fyrstu sex mánuði ársins.

Hann fullyrðir boðaðar aðhaldsaðgerðir meirihlutans hafa skilað árangri enda hafi fjöldi stöðugilda haldist óbreyttur milli ára. Það er í hrópandi ósamræmi við boðaðar fækkanir stöðugilda og er raunar dæmigert metnaðarleysi meirihlutans – að ráðast í aðhald sem skilur engan eftir léttari – aðeins áfram í sömu þyngd.

Vöndum til verka

Þrátt fyrir hóflega skattheimtu skilaði Kópavogur nýverið jákvæðu árshlutauppgjöri. Kópavogur kemur jafnframt ítrekað mun betur út úr ánægjumælingum en höfuðborgin Reykjavík. Það fer nefnilega vel saman að tryggja hóflega skattheimtu og öfluga þjónustu í kröftugu sveitarfélagi. Það þarf einfaldlega að vanda til verka.

Því miður reynist eina yfirlýsta breyting borgarstjórans vera sjónhverfing. Ekki tekst borgarstjóranum betur en forvera hans að halda sig innan áætlana. Honum hefur hvorki tekist að bæta rekstur borgarinnar með aðhaldsaðgerðum, né heldur að tryggja borgarbúum bætta þjónustu.

Það getur hver sem er skrökvað árangri og framförum að borgarbúum – en færri geta skilað borgarbúum raunverulegum árangri. Það verður mikilvægt fyrir kjósendur að geta greint þar á milli. Varist eftirlíkingar.

Greinin birtist á visir.is 8. september 2024.