Að grípa börn
'}}

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði:

Mjög réttmæt gagnrýni á úrræðaleysi gagnvart börnum með fjölþættan vanda hefur komið fram á síðastliðnum dögum.

Fyrir nokkrum árum lokaði ríkið tugum úrræða fyrir börn með flókinn og margvíslegan vanda, án þess að nokkuð annað kæmi í staðinn. Það var slæm ákvörðun. Meðferðarheimilið Stuðlar er þó enn starfandi eins og kunnugt er. Þegar öðrum úrræðum ríkisins var lokað var sveitarfélögunum gert að leysa málin á meðan leitað yrði annarra lausna og hefur það reynst mörgum þeirra hreinlega ofviða.

Í Hafnarfirði var fyrir um sjö árum sett á laggirnar nýtt verklag til að reyna að grípa snemma börn í vanda og veita fjölskyldum þeirra stuðning eftir fremsta megni. Það verkefni kallast Brúin og byggir á snemmtækri íhlutun og öflugra samstarfi félagsmálayfirvalda, skóla og fjölskyldunnar. Þar er lögð áhersla á að grípa inn í jafnvel strax á leikskólaaldri þegar þess verður vart að barn búi við erfiðar aðstæður, félagslega, námslega, hegðunarlega eða tilfinningalega. Þannig er barni og fjölskyldu þess veittur stuðningur eftir þörfum til að minnka líkur á að vandi barnsins aukist með hverju ári og verði jafnvel ill viðráðanlegur þegar á unglingsaldur er komið. En í þeim tilvikum þar sem vandinn er flóknastur og erfiðastur þarf að beita öðrum ráðum, mun meiri stuðningi og jafnvel meðferðarúrræðum. Þá hafa sveitarfélögin hvert fyrir sig og barnaverndarnefndir landsins þurft að veita börnum og unglingum viðeigandi lausnir. Það reynist oft á tíðum mjög erfitt og málin einungis þyngjast ár frá ári nú þegar álag í velferðar- og skólakerfinu hefur verið að aukast mjög hratt undanfarin ár.

Sveitarstjórnarfólk hefur kvartað undan þessu úrræðaleysi í nokkur ár og að ríkið hafi velt þessu heilbrigðismáli nánast alfarið yfir á sveitarfélögin. Nefnd sem ráðherra skipaði um málefni barna með fjölþættan vanda skilaði tillögum fyrir um ári. Vonir standa til að innan tíðar verði loksins fundin lausn þar sem bæði ríki og sveitarfélög komi saman að uppbyggingu úrræða. Það liggur á að tryggja þjónustu fyrir börn með fjölþættan vanda og mikilvægt að kostnaðarskipting verði vel skilgreind svo hlutirnir gangi upp.

Við þurfum að geta gripið öll börn í vanda – hvert og eitt barn, líðan þess og framtíð skiptir máli.

Greinin birtist á visir.is 5. september 2024.