Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar Alþingis:
Óhætt er að segja að hryllilegt neyðarástand ríki í Súdan. Í rúmt ár hafa herforingjar barist um völdin í landinu með skelfilegum afleiðingum. Morgunblaðið hefur ítrekað vakið athygli á stöðunni og í liðinni viku var ítarleg umfjöllun um ástandið í Ríkisútvarpinu. Þar benti Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, á það að í Súdan ríki ein mesta neyðar- og mannúðarkrísa sem heimurinn hefði staðið frammi fyrir. Ein birtingarmynd þess væri kerfisbundnar nauðganir þar sem milljónir kvenna og stúlkna hefðu verið beittar kynbundnu ofbeldi. Þar eru lítil stúlkubörn ekki undanskilin.
Höfuðborgin Khartoum hefur verið lögð í rúst og þótt tölur um fallna séu á reiki er ljóst að tugir þúsunda hafi látið lífið í átökunum í það minnsta. Um 12 milljónir manna hafa flúið heimili sín og 26 milljónir manna í Súdan eru á barmi hungursneyðar og þarfnast mannúðaraðstoðar. Þar geysar nú versta hungursneyð veraldar.
Þessar staðreyndir eru þyngri en tárum taki. Það er óskiljanlegt hversu litla athygli ástandið hefur fengið á heimsvísu, en almenningur í Súdan upplifir sig algjörlega afskiptan. Stríðið hefur enda verið kallað gleymda stríðið. Við í utanríkismálanefnd höfum haft málið til umfjöllunar og ég lagði auk þess fram fyrirspurn á Alþingi til utanríkisráðherra um ástandið í Súdan. Þar óskaði ég eftir upplýsingum um hvort íslensk stjórnvöld hefðu vakið máls á ástandinu í Súdan á alþjóðlegum vettvangi og þá með hvaða hætti.
Utanríkisráðherra hefur nú svarað fyrirspurninni og greint frá því að íslensk stjórnvöld hafi vakið máls á ástandinu á alþjóðlegum vettvangi. Ísland hafi tekið þátt í alþjóðlegum framlagaráðstefnum vegna þessa og ráðherrann hafi sérstaklega vakið máls á fregnum af kynferðisofbeldi og fjölda vegalausra einstaklinga í Súdan. Íslensk stjórnvöld hafi sömuleiðis tekið málið upp á vettvangi mannréttindaráðsins og staðið að sameiginlegri yfirlýsingu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna um hörmungarnar. Þá upplýsti ráðherrann að Ísland hefði innleitt þvingunaraðgerðir ESB varðandi Súdan og tekið undir yfirlýsingar sambandsins um málefni Súdan.
Því miður geysa hræðileg átök víða um heim og skýrir það að hluta áhugaleysi alþjóðasamfélagsins og almennings á málefnum Súdan. Þessi átök eiga það þó sammerkt með fleirum að illvirkjar í Íran og Rússlandi hafa með virkum hætti skipt sér af þeim. Ég mun halda áfram að vekja athygli á stöðunni og geri ráð fyrir áframhaldandi umfjöllun í utanríkismálanefnd. Ísland man eftir Súdan.
Greinin birtist fyrst á Vísi.is 22. ágúst 2024