Berglind Ósk Guðmundsdóttir alþingismaður:
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) rekur einu heilsugæsluna sem starfrækt er á Akureyri. Þó húsnæðið sé nýtt og glæsilegt var það orðið of lítið áður en það var tekið í notkun, en það er vegna þess fjölda sem heilsugæslan þjónustar. Fyrir nokkrum árum tók þáverandi heilbrigðisráðherra þá ákvörðun að fyrir Akureyri og nærsveitir þyrfti að halda úti tveimur heilsugæslustöðvum. En síðan þá hafa hringl og vandræði varðandi staðsetningu og útboð framkvæmdanna þvælst fyrir uppbyggingu á seinni heilsugæslunni. Ekkert hentugt húsnæði er í sjónmáli. Ein heilsugæslustöð er rekin fyrir rúmlega 20 þúsund einstaklinga.
Þróunin á sér stað
Tveir heimilislæknar sem starfað höfðu lengi á HSN á Akureyri réðu sig fyrr í vetur til starfa hjá Heilsugæslunni Urðarhvarfi í Kópavogi. Þau vildu þó áfram búa á Akureyri og þjónusta stóran skjólstæðingahóp sinn sem telur um 1.000 einstaklinga búsetta á Akureyri. Í fyrstu veittu þeir þjónustu frá aðstöðu sinni á Læknastofum Akureyrar en Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) kröfðust þess að þau störfuðu einungis í Urðarhvarfi. Nú þjónusta heimilislæknarnir skjólstæðinga sína með aðstoð tækninnar eða þá að bæði læknarnir og skjólstæðingarnir fara suður til að hittast þar í Kópavogi. Þá hefur heilsugæslan nýlega tilkynnt kaup á vitjanabíl læknis þar sem heimilt er að vitja skjólstæðinga á heimili sínu.
Forsvarsmenn heilsugæslunnar hafa ítrekað óskað eftir samtali við SÍ frá því í mars til að leysa þessa furðulegu stöðu þar sem læknunum er meinað að starfa á starfsstöð á Akureyri en erindinu hefur ekki enn verið svarað. Þetta er spurning um að veita fólki nauðsynlega heilbrigðisþjónustu því ekki verður við þetta ástand lengi unað.
Kreddur og pólitík
Það er því ekki óeðlilegt að forsvarsmenn heilsugæslunnar velti því fyrir sér hvort kreddur um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu og pólitískar skoðanir heilbrigðisyfirvalda séu að þvælast fyrir því að eitthvað þokist áfram í þessum málum.
Á Alþingi hef ég, ásamt þingmönnum þingflokks Sjálfstæðisflokksins, ítrekað lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að heilbrigðisráðherra feli Sjúkratryggingum Íslands að fara í útboð á annarri heilsugæslunni sem til stendur að opna á Akureyri.
Í fréttatilkynningu frá HSN hinn 18. október 2023 kom fram að HSN og heilbrigðisráðuneyti ætli sameiginlega að gera greiningu á því hvort hyggilegt sé að stofnunin reki báðar stöðvarnar eða hvort rekstur annarrar þeirrar verði boðinn út. Þetta kom mér ánægjulega á óvart svo ég fylgdi þessu eftir í mars með fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um framvindu greiningarinnar. Mikil voru vonbrigðin þegar svarið leiddi í ljós að engin ákvörðun hafði verið tekin af hálfu ráðherra að bjóða út reksturinn og því engin greining farin af stað, þrátt fyrir fyrri fyrirheit.
Heilbrigðiskerfi fyrir alla
Það er mikilvægt að stjórnvöld standi ekki í vegi fyrir fjölbreyttum atvinnutækifærum fyrir fagmenntað heilbrigðisstarfsfólk svo við missum ekki dýrmæta þekkingu og reynslu af svæðinu eða jafnvel úr landinu. Auk þess þarf að tryggja að allir hér njóti framúrskarandi heilbrigðisþjónustu og að kerfið bjóði upp á raunverulegt valfrelsi einstaklinganna til að skrá sig á þá heilsugæslustöð sem þeim hentar.
Einstaklingurinn á að vera hjartað í heilbrigðiskerfinu okkar. En hér virðist sem um 1.000 skjólstæðingar séu algjört aukaatriði í skipulagi þjónustunnar sem er miðuð að kerfinu en ekki einstaklingunum.
Að lokum skora ég á heilbrigðisráðherra að gera það sem rétt er í þessu fyrir þá fjölmörgu einstaklinga sem hér eru undir og bjóða út rekstur annarrar heilsugæslunnar á Akureyri tafarlaust.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 1. ágúst 2024.