Diljá Mist Einarsdóttir alþingismaður og formaður utanríkismálanefndar Alþingis:
Við sjálfstæðismenn gátum glaðst yfir mörgu við þinglok. Eitt af því var hækkun á hámarksgreiðslum í fæðingarorlofi sem þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa stutt ötullega. Við þinglega meðferð gerði meirihluti velferðarnefndar mikilvægar breytingar á málinu á þann veg að hækkunin gildi fyrir alla þá sem eiga rétt á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði.
Gott fæðingarorlofskerfi er gríðarlega mikilvægt jafnréttismál sem Sjálfstæðisflokkurinn á stóran þátt í þróun og síðar umbótum á. Ragnhildur Helgadóttir, þingmaður og síðar ráðherra Sjálfstæðisflokksins, lagði fram frumvarp á Alþingi 1975 um rétt allra kvenna sem forfölluðust frá vinnu vegna barnsburðar til bótagreiðslu í samtals 90 daga. Ragnhildur benti á að með þessu væri mismunur sá sem hefði viðgengist í atvinnulífinu gagnvart konum leiðréttur og var frumvarpið samþykkt. Seinna rifjaði Ragnhildur það upp að á löngum og farsælum stjórnmálaferli, væri þetta mál bæði stærst og minnistæðast.
Árið 1986 skipaði Ragnhildur, þá heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, nefnd til að skoða endurbætur á fyrirkomulagi fæðingarorlofs. Í kjölfarið lagði hún fram frumvörp sem fólu í sér meginbreytingar á kerfinu. Með því voru lögfest ný heildarlög um fæðingarorlof þar sem orlofið var m.a. lengt úr þremur mánuðum í sex.
Ríkisstjórnir sem leiddar voru af Sjálfstæðisflokknum á tíunda áratugnum gerðu mikilvægar breytingar á fæðingarorlofi. Á þeim árum voru réttindi foreldra (og barna) aukin mjög mikið, ekki síst feðra. Árið 2000 kom fram tímamótafrumvarp um fæðingarorlof. Frumvarpið hafði verið unnið í samstarfi félagsmálaráðherra, fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra, ekki síst að frumkvæði fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins Geirs H. Haarde. Markmiðið var að tryggja börnum samvistir við báða foreldra sína og að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Fæðingarorlofsréttur var þá m.a. lengdur úr sex mánuðum í níu. Með frumvarpinu lögfestu Íslendingar sömuleiðis lengsta sjálfstæða rétt feðra sem þá þekktist og urðu í forystu varðandi réttindi feðra. Eftir gildistöku laganna hækkaði hlutfall feðra sem tóku fæðingarorlof úr 30% í rúm 80% á örfáum árum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur löngum haft frumkvæði hvað réttindi kvenna og fleiri framfaramál varðar. Birgir Kjaran þingmaður Sjálfstæðisflokksins átti, ásamt fleirum, frumkvæði að því að gera umhverfismál að viðfangsefni íslenskra stjórnmála. Réttindi kvenna og önnur félagsleg verkefni urðu verkefni Sjálfstæðisflokksins (áður Íhaldsflokksins) löngu áður en aðrir stjórnmálaflokkar tóku slíka stefnu upp í verki. Sjálfstæðisflokkurinn státar enda af fyrstu kvenkyns þingmönnunum, borgarstjóranum og fyrstu kvenkyns ráðherrunum.
Jafnrétti er einn af hornsteinum stefnum Sjálfstæðisflokksins, enda byggir það á frelsi einstaklingsins. Með því telja sjálfstæðismenn að grunnur sé lagður að góðum lífskjörum og velferð samfélagsins alls. Það var enda Sjálfstæðisflokkurinn sem leiddi breytingar á mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar með sérstöku jafnréttisákvæði og innleiðingu ákvæða mannréttindasáttmála Evrópu í stjórnskipun landsins. Sterkt fæðingarorlofskerfi sem virkar fellur því vel að stefnu Sjálfstæðisflokksins og viðeigandi að það hafi verið styrkt enn frekar í ríkisstjórn undir forystu sjálfstæðismanna.
Greinin birtist á Vísi 1. júlí 2024.