Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi var haldinn á Laugum í Sælingsdag um nýliðna helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu. Að öflugir innviðir og einfalt og skilvirkt regluverk séu forsenda kröftugs atvinnulífs og að hið opinbera eigi að halda sig til hlés en treysta á krafta einstaklingsins og einkaframtaksins til að skapa samfélag sem blómstrar.
Þar segir að til að tryggja verðmætasköpun þurfi innviðir að vera í lagi, hvort sem um er að ræða samgöngu-, orku- eða fjarskiptainnviði. Brýnt sé að stjórnvöld liðki til fyrir frekari orkuöflun í kjördæminum með lagasetningu. „Þar má sérstaklega nefna ákall Vestfirðinga um að verða sjálfum sér nægir í raforkumálum, í samræmi við tillögur nefndar um orkumál í fjórðungnum sem skilaði af sér á síðasta ári og frekari uppbyggingu orkumannvirkja í Húnabyggð og Skagafirði,“ segir í ályktuninni.
Afnema skuli undanþágur arðbærra orkumannvirkja frá fasteignagjöldum
Þá ályktar kjördæmisráðið að tafarlaust þurfi að endurskoða óskilvirkt og hægvirkt ferli sem stjórnvöld hafa skapað og helfur aftur af grænni orkuöflun í landinu. Ekki sé síður mikilvægt að halda áfram uppbyggingu flutningskerfa og afnema undanþágur arðbærra orkumannvirkja frá fasteignagjöldum.
"Þar má sérstaklega nefna ákall Vestfirðinga um að verða sjálfum sér nægir í raforkumálum, í samræmi við tillögur nefndar um orkumál í fjórðungnum sem skilaði af sér á síðasta ári og frekari uppbyggingu orkumannvirkja í Húnabyggð og Skagafirði," segir í ályktuninni.
Ríkisstjórnin sýni að henni sé alvara með að ná niður verðbólgu og vaxtastigi
Kjördæmisráðið ályktar einnig að í ljósi markmiða í ríkisfjármálum sé uppsokkun ríkisstjórnarinnar þó dýru verði keypt og vonbrigði að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir oddviti flokksins í kjördæminu hverfi úr hlutverki fjármála- og efnahagsráðherra á mikilvægum tímapunkti á kjörtímabilinu.
„Það er von kjördæmisráðsins að ríkisstjórnin sýni það í verki að henni sé alvara með að styðja við helsta forgangsmál stjórnarinnar að ná niður verðbólgu og vaxtastigi.“
Kjördæmisráð segir að ríkisstjórnin þurfi að vinna hörðum höndum að einföldun regluverks þvert á ráðuneyti. Mikilvægt sé að frumvörp dómsmálaráðherra um útlendingamál og löggæslu verði að lögum á vorþingi og að téðir virkjunarkostir í Norðvesturkjördæmi og víðar verði samþykktir með lögum áður en árið sé liðið.
Áhersluatriði fyrrum fjármálaráðherra hljóti framgang
„Það er von kjördæmisráðsins að ríkisstjórnin sýni það í verki að henni sé alvara með að styðja við helsta forgangsmál stjórnarinnar að ná niður verðbólgu og vaxtastigi.“
Í ályktuninni segir einnig: "Í ríkisfjármálunum er mikilvægt að missa ekki dampinn og þau frumvörp og áhersluatriði sem fyrrum fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins lagði fram hljóti framgang. Sjálfstæðisfólk í Norðvesturkjördæmi treystir því að ráðherrar beri virðingu fyrir atvinnufrelsi og eignarrétti óháð flokkum. Það er skýlaus krafa okkar að hvalveiðar verði heimilaðar þegar í stað."
„Góð rekstrarskilyrði atvinnulífsins, efling skólastarfs á öllum skólastigum um land allt, stuðningur við nýsköpun og bráðnauðsynleg uppbygging innviða, leggur grunn að enn frekari lífskjarasókn og að áfram sé hægt að styrkja heilbrigðis- og velferðarkerfi okkar til lengri og skemmri tíma.“
Ísland verði áfram í fremstu röð
Þá segir að á síðari hluta kjörtímabilsins, í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar, beri að leggja höfuðáherslu á áframhaldandi trausta efnahagsstjórn, sem styður við lífskjörin í landinu, stuðlar að heilbrigðu og öflugu atvinnulífi, örvar nýsköpun og tryggir að Ísland verði áfram í fremstu röð á sem flestum sviðum.
Sigríður endurkjörin formaður
Á fundinum var Sigríður Ólafsdóttir, Húnaþingi vestra, endurkjörin formaður kjördæmisráðs. Ásamt henni voru kjörin í stjórnina; Jón Daníel Jónsson, Skagafirði, Maggý Hjördís Keransdóttir, Patreksfirði, Carl Jóhann Gränz, Akranesi, Bryndís Ásta Birgisdóttir, Súgandafirði, Þorsteinn Pálsson, Borgarfirði, Björn Ásgeir Sumarliðason, Stykkishólmi og Guðlaugur Skúlason, Sauðárkróki.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins, utanríkisráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu ávarpaði fundinn ásamt Teiti Birni Einarssyni þingmanni kjördæmisins. Ásamt þeim sóttu fundinn Hildur Sverrisdóttir formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Jón Gunnarsson alþingismaður og Þórður Þórarinsson framkvæmdastjóri flokksins. Um kvöldið var slegið upp í heljarinnar veislu á staðnum þar sem Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra var heiðursgestur og Brynjar Níelsson stýrði veilsunni af sinni alkunnu snilld.