Vilhjálmur Árnason, ritari Sjálfstæðisflokksins og alþingismaður, verður gestur laugardagsfundar Varðar í Valhöll, Háaleitisbraut 1, laugardaginn 6. apríl kl 10:30.
VIlhjálmur mun fjalla um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu, stöðu mála í Grindavík og stjórnmálaástandið almennt.
Hér er hlekkur á viðburðinn á Facebook
Heitt á könnunni!
Félag sjálfstæðismanna í Miðbæ og Norðurmýri
Laugardagsfundir Varðar eru öllum opnir og eru haldnir á vegum Varðar og sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Að þessu sinni sér Félag sjálfstæðismanna í Miðbæ og Norðurmýri um skipulag fundarins.