Aðalfundur Samtaka eldri sjálfstæðismanna fer fram miðvikudaginn 6. mars kl. 12:00 að hádegi í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
Húsið opnar kl. 11:30 og boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 1.100 kr.
Vegna framkvæmda á lóð Valhallar er fólk hvatt til að sameinast í bíla og leggja í nágrenninu.
Stjórn Samtaka eldri sjálfstæðismanna.