Brynjar formaður starfshóps gegn gullhúðum EES-reglna
'}}

„Það þarf að vanda vel til verka við innleiðingu EES-reglna svo þær leggi ekki meiri byrðar á herðar almennings og fyrirtækja en gerist annars staðar á innri markaðnum. Þá þarf að vera skýrt hvað leiðir af aðild okkar að EES og hvað sé heimasmíðað, þegar svo ber undir. Starfshópnum er ætlað að koma auga á og greina dæmi þar um og leggja fram tillögur til úrbóta hvað þetta varðar, en sams konar úttektir á einstaka málefnasviðum benda til þess að frekari aðgerða sé þörf,“ segir Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra sem í gær skipaði starfshóp um aðgerðir gegn svokallaðri gullhúðun EES-reglna.

Með gullhúðun er átt við þegar stjórnvöld herða á reglum EES-gerða eða bæta við heimasmíðuðum ákvæðum í innleiðingarfrumvörp sem ekki leiða af skuldbindingum EES-samningsins.

Í hópnum eiga sæti Brynjar Níelsson lögmaður sem verður formaður hópsins, dr. Margrét Einardóttir prófessor við Háskólann í Reykjavík og María Guðjónsdóttir lögfræðingur Viðskiptaráðs.

Getur hópurinn lagt til almennar úrbætur eða vegna einstakra mála sem eru til þess fallnar að draga úr áhættunni á að gullhúðun eigi sér stað.

Sjá nánar á vef utanríkisráðuneytisins hér.