Kveiksþáttur áróður gegn íslensku krónunni

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra segir í færslu á facebook að Kveiksþáttur Ríkisútvarpsins í gærkvöldi hafi snúist að uppistöðu til um gjaldmiðil þjóðarinnar og verið samfelldur áróður gegn íslensku krónunni sem þó hafi verið einn grunnurinn að miklum hagvexti undanfarinn áratug, verulegum kaupmáttarvexti og háu atvinnustigi.

„Almennt einhverjum bestu lífskjörum á byggðu bóli. Mér fannst þessi þáttur eiginlega hneyklsi, svo margt var slitið úr eðlilegu samhengi og röngu ljósi varpað á heildarmyndina,“ segir hann.

Bjarni segir að látið hafi verið að því liggja að það væru einhvers konar forréttindi þeirra sem hafi meginþorra tekna í annarri mynt að gera upp í þeirri sömu mynt.

„Síðan svona í hálfkæringi sagt að með því að þessi fyrirtæki væru með peninga í útlöndum væri hætta á að þeir kæmu aldrei heim. Þetta ætti t.d. við um sjávarútvegsfyrirtæki,“ segir Bjarni og spyr hverju þetta sæti.

Hann segir að Jón Daníelsson hagfræðingur hafi gert vel í að útskýra fyrir þáttagerðarmanni að þetta væri alls ekki óeðlilegt. Hann segir þó að sér hafi þótt innskotin einkennilega klippt til eins og til að gera lítið með þessi sjónarmið. Það hafi mátt ráða af þættinu að eftirsóknarvert væri að heimilin fengju að gera upp í erlendri mynt.

„Þar vantaði tilfinnanlega umræðu um gengisáhættu og upprifjun á því hvernig það endaði síðast þegar það var gert. Hafa menn ekkert lært, öllu gleymt?“ segir hann.

Þá segir hann í heildina hafa skort í þennan þátt allt jafnvægi, alla fagmennsku og yfirvegun í efnahagslega samhenginu. Það sé hálf sorglegt að boðið sé upp á svona efni á Ríkisútvarpinu.

Bjarni segir að viðtöl við Katrínu Ólafsdóttur hafi verið án samhengis við hina stóru efnahagslegu mynd. Gott hefði verið fyrir þáttastjórnanda að nota tækifærið og spyrja Katrínu út í þá vinnu sem hún vann fyrir þjóðhagsráð um efnahagsmál og vinnumarkað. „Nú eða ræða við Arnór Sighvatsson um hagkerfið, hagstjórnina og vinnumarkaðinn.“ Þá vísar hann í neðangreindan hlekk þar sem finna megi tengla inn á hvort tveggja – sjá hér.