Hið árlega jólaball Hvatar á sunnudag

Hið árlega jólaball Hvatar verður haldið sunnudaginn 3. desember á milli kl. 14:00 til 16:00 í bókastofunni í Valhöll.

Dansað verður í kringum jólatréð undir ljúfum tónum Illuga Gunnarssonar. Jólasveinninn mætir á svæðið um kl. 15:00 með glaðning fyrir börnin. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Aðgangseyrir er 1.500 kr. (valfrjáls) og rennur í þetta skiptið óskiptur til Mæðrastyrksnefndar þökk sé styrktaraðilum sem hafa þegar dekkað kostnað með greiðslu valkrafna

Hægt er að kaupa miða hér:

Einnig er hægt að styrkja með frjálsum framlögum með millifærslu:

Reikn.nr: 0526-26-650169

kt: 650169-4689

Takið daginn frá og gleðjumst saman á aðventunni.

Sjá nánar facebook-viðburð hér.

Verið öll hjartanlega velkomin,
Stjórn Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík