Viktor Pétur kjörinn formaður SUS á fjölmennu sambandsþingi

Hátt í 200 ungir sjálfstæðismenn sóttu 47. Sambandsþing Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) sem haldið var á Hótel Selfoss um helgina, að því er fram kemur í fréttatilkynningu SUS. Viktor Pétur Finnsson var  kjörinn formaður sambandsins, Steinar Ingi Kolbeins var endurkjörinn í embætti 1. varaformanns og Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir var kjörin í embætti 2. varaformanns. Viktor Pétur tekur við embætti formanns af Lísbet Sigurðardóttur.

Ásamt Vikt­ori, Stein­ari og Gunn­laugu voru 39 aðrir ein­stak­ling­ar kjörnir í sambandsins, en þeir eru taldir upp hér neðst á síðunni.

Hægri sveifla á stefnu SUS

Á þinginu voru mál líðandi stundar í deiglunni sem og málefni ungs fólks. Aðaláherslumál þingsins voru að þessu sinni mennta- og skólamál, heilbrigðismál, húsnæðismál og verndarkerfi flóttamanna.

„Aðaláherslumál ungra sjálfstæðismanna á þinginu voru skýr og það var mikil hægri sveifla á stefnu okkar. Við viljum frelsisbyltingu í menntamálum með því að taka upp ávísanakerfi og fjölga sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólum. Þannig getum við stóreflt nám á Íslandi, gefið foreldrum raunverulegt frelsi um menntun barna sinna sem byggir á þörfum og styrkleikum hvers barns á sama tíma og við bætum kjör og starfsaðstæður skólastarfsfólks.

Það sama er upp á teningnum í heilbrigðismálum. Við þurfum að fjölga einkareknum heilsugæslum, sérstaklega á landsbyggðinni, til að tryggja fólki betri þjónustu. Með því að láta fé fylgja sjúklingnum sköpum við hvata fyrir heilbrigðisstofnanir að bæta gæði og skilvirkni svo bið eftir heilbrigðisþjónustu minnki. Svona aukum við samkeppni og biðlistar minnka á sama tíma og þjónusta batnar til muna án þess að kosta einstaklinginn fúlgur fjár,“ er haft eftir Viktori Pétri, nýjum formanni SUS, í tilkynningu sambandsins.

Uppfærð stefna í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd

Yfirgnæfandi samstaða var um það í málefnastarfi þingsins að finna þurfi lausnir við þeim vandamálum í kerfinu sem snýr að umsækjendum um alþjóðlega vernd. Samþykkt var á þinginu að setja í stefnu SUS að stutt sé við þá hugmynd að koma á fót búsetuúrræðum með takmörkunum fyrir þá hælisleitendur sem ekki eiga samvinnu við yfirvöld, í kjölfar þess að hafa fengið synjun um hæli, þar til að brottvísun kemur og samrýmast þar með Schengen-svæðinu.

„Einnig tökum við skýrt fram í stefnunni að kærunefnd útlendingamála þurfi að endurskoða, enda er hún ólýðræðisleg og tekur veigamiklar ákvarðanir sem varða til að mynda fjármál hins opinbera án þess að bera neina pólitíska ábyrgð,“ segir Viktor að lokum.

Stjórnmálaályktun þingsins og uppfærð stefna SUS verða birt á næstu dögum.

Ný stjórn SUS:

  • Gunn­laug Helga Ásgeirs­dótt­ir
  • Embla Krist­ín Blön­dal Ásgeirs­dótt­ir
  • Hulda Dröfn Svein­björns­dótt­ir
  • Sindri Már Smára­son
  • Björn Gunn­ar Jóns­son
  • Daní­el Hjörv­ar Guðmunds­son
  • Eyrún Reyn­is­dótt­ir
  • Krist­inn Jök­ull Krist­ins­son
  • Selma Guðjóns­dótt­ir
  • Kristó­fer Már Mar­ons­son
  • Stein­ar Ingi Kol­beins
  • Garðar Árni Garðars­son
  • Ar­ent Orri Jóns­son
  • Magnús Bene­dikts­son
  • Sonja Dís John­son Guðlaugs­dótt­ir
  • Júlí­us Viggó Ólafs­son
  • Jón Birg­ir Ei­ríks­son
  • Eym­ar Jan­sen
  • Jens Ingi Andrés­son
  • Victor Snær Sig­urðar­son
  • Lovísa Ólafs­dótt­ir
  • Birta Kar­en Tryggva­dótt­ir
  • Snæ­dís Edwald
  • Bryn­dís Bjarna­dótt­ir
  • Salka Sig­mars­dótt­ir
  • Dóra Tóm­as­dótt­ir
  • Her­mann Nökkvi Gunn­ars­son
  • Sveinn Ægir Birg­is­son
  • Logi Þór Ágústs­son
  • Ing­veld­ur Anna Sig­urðardótt­ir
  • Ragn­ar Óskars­son
  • Guðni Kjart­ans­son
  • Krist­ín Amy Dyer
  • Ein­ar Freyr Bergs­son
  • Ragn­ar Bjarni Zoëga Hreiðars­son
  • Frank­lín Ern­ir Kristjáns­son
  • Hall­dór Lár­us­son
  • Helga Björg Lofts­dótt­ir
  • Birk­ir Örn Þor­steins­son
  • Katrín Sig­ríður Þor­steins­dótt­ir Bachmann
  • Inga Þóra Páls­dótt­ir
  • Vikt­or Pét­ur Finns­son