Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra hitti í dag Henrik Asheim varaformann Høyre, norska systurflokks Sjálfstæðisflokksins í Høyres Hus - höfuðstöðvum flokksins í Osló.
Høyre vann stórsigur í nýafstöðnum fylkis- og sveitarstjórnarkosningum í Noregi og er nú í fyrsta skipti í 99 ár stærsti stjórnmálaflokkur Noregs.
Á fundinum ræddu varaformennirnir EES-samstarfið og hagsmunagæslu landanna þar. Verðmætasköpun landanna, stórsigur Høyre í nýafstöðnum kosningum og stöðuna í alþjóðastjórnmálunum.