Persónuafsláttur mun hækka um fimm þúsund krónur á mánuði um áramótin og skattleysismörk munu hækka um rúmlega 16 þúsund krónur. Þetta kemur fram í nýbirtu fjárlagafrumarpi.
Með þessu mun einstaklingur með 500 þúsund krónur í mánaðartekjur greiða rúmlega 7 þúsund krónum minna í tekjuskatt í janúar 2024 en hann gerir í desember á þessu ári.
Áætlað er að þrepamörk hækki um 8,5 prósent árið 2024 þar sem þjóðhagsspá geri ráð fyrir 7,4 prósenta verðbólgu í lok árs. Var það innleitt á síðasta ári að þrepamörk hækki sem nemur verðbólgustigi við lok hvers ár að viðbættu prósents framleiðniviðmiði.
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir komandi ár var kynnt í dag og verður mælt fyrir því á Alþingi á fimmtudag.