Ræðu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur streymt beint

Ræðu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur varaformanns Sjálfstæðisflokksins á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í dag uppúr kl. 14:00 á Hilton Reykjavík Nordica verður streymt beint á xd.is og á facebook-síðu flokksins.

Sent verður beint frá fundinum í allan dag. Á eftir setningarræðu formanns tekur við útsending í setti þar sem tekin verða viðtöl við valinkunna einstaklinga um fjölmörg málefni, orkumál, sveitarstjórnarmál, heilbrigðismál, nýsköpunarmál, efnahagsmál, útlendingamál, öryggis- og varnarmál og í lokin samantekt fundarins. Fylgist með á xd.is og á facebook.