Netöryggisráð gert skilvirkara og áhrifaríkara
'}}

„Netöryggisráð yrði fagráð, sem leggur sjálfstætt mat á framkvæmd netöryggisstefnu stjórnvalda og stöðu netöryggis hverju sinni. Það mat verður mikilvægt innlegg er kemur að stöðutöku og stefnumarkandi ákvörðunum í málaflokknum,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem hefur lagt fram í samráðsgátt drög að nýrri reglugerð um netöryggisráð.

Í frétt á vef ráðuneytisins segir að netöryggisráð hafi starfað sem samráðsvettvangur stjórnvalda á sviði netöryggis frá árinu 2015. Þrátt fyrir breytingar á reglugerð yrði hlutverk ráðsins eftir sem áður að fylgja eftir framkvæmd stefnu stjórnvalda á sviði net- og upplýsingaöryggis og að leggja mat á stöðu netöryggis á Íslandi ásamt því að vera vettvangur upplýsingamiðlunar og samhæfingar.

Þar segir jafnframt: „Með reglugerðinni yrðu gerðar breytingar á skipan ráðsins sem miða að því að gera ráðið skilvirkara og áhrifaríkara. Fulltrúum ráðsins yrði fækkað úr þrettán í sjö og gerð yrði krafa um góða þekkingu á netöryggismálum og  öryggisvottun. Auk þess er hlutverk ráðsins samkvæmt lögum skýrt nánar. Kveðið yrði á um að ráðið leggi fyrir ráðherra árlegt mat á framkvæmd stefnu og aðgerða á sviði netöryggis. Jafnframt myndi ráðið leggja sjálfstætt mat á stöðu netöryggis á Íslandi og miðla því til ráðherra í formi skriflegs álits.”

„Netöryggisráð yrði fagráð, sem leggur sjálfstætt mat á framkvæmd netöryggisstefnu stjórnvalda og stöðu netöryggis hverju sinni. Það mat verður mikilvægt innlegg er kemur að stöðutöku og stefnumarkandi ákvörðunum í málaflokknum,“ segirÁslaug Arna.

„Ætlunin er að nýr samstarfsvettvangur gegni mikilvægu hlutverki við að styðja við mótun og framfylgd stefnu stjórnvalda í netöryggismálum, t.a.m. með deilingu á sérfræðiþekkingu, sem brúar bil milli einkageirans og hins opinbera. Við erum að taka mikilvæg skref í mótun slíks vettvangs. Í kjölfarið verður unnið úr því innleggi sem berst í samráðsgátt til þess að setja samstarfsvettvang um netöryggi á laggirnar,“ segir hún enn fremur.

Sjá nánar hér.