Oddvitar mótmæla ákvörðun Innviðaráðherra og Reykjavíkurborgar
'}}

Áform Innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um að hafist verði handa við jarðvegsframkvæmdir og þar með undirbúning íbúðauppbyggingar í Skerjafirði setur framtíð Reykjavíkurflugvallar í uppnám og vegur að öryggi landsbyggðarinnar. Áformin ganga gegn þeim loforðum sem sett voru í samkomulagi milli Reykjavíkurborgar og ríkisins árið 2019 um að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar þar til nýr flugvöllur sé tilbúin til notkunar. Þar er gert ráð fyrir að rannsóknum ljúki um gerð nýs flugvallar árið 2024 og í kjölfarið verði hafist handa við slíka uppbyggingu reynist það fýsilegur kostur.

Byggð í Skerjafirði mun þrengja enn frekar að Reykjavíkurflugvelli og rýra notagildi hans vegna breytinga á vindafari. Öruggt innanlandsflug er mikilvægt búsetuskilyrði landsbyggðanna og tryggir atvinnulífinu, heilbrigðisþjónustunni, stjórnsýslunni og íbúum aðgengi að mikilvægri þjónustu sem ætluð er öllum landsmönnum. Reykjavíkurflugvöllur er kerfislega mikilvæg lífæð landsins. Það er með öllu ótækt að vegið sé að öryggi hans og framtíð með ákvörðun um uppbyggingu í Skerjafirði áður en búið er að tryggja framtíð innanlandsflugvallar með öðrum sambærilegum eða betri hætti. Með þessari ákvörðun Innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar er spilað með framtíðaröryggi og lífsgæði landsbyggðanna hringinn í kringum landið. Þannig er eining þjóðarinnar rofin.

Undirritaðir oddvitar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram eftirfarandi ályktun til samþykktar í sveitarstjórnum þar sem aðför að Reykjavíkurflugvelli var harðlega mótmælt. Ályktunin fékk mismunandi brautargengi en víðast hvar var samþykkt samhljóða að mótmæla ákvörðun borgaryfirvalda og Innviðaráðuneytisins.

 

Ályktun

[Sveitarfélagið] lýsir yfir þungum áhyggjum vegna ákvörðun Innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu í Skerjafirði. Með ákvörðuninni er samkomulag ríkisins og Reykjavíkurborgar frá 2019 haft að engu þar sem forsenda þess var að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar þar til nýr flugvöllur er tilbúinn til notkunar.

Reykjavíkurflugvöllur sinnir mikilvægu hlutverk og er lífæð landsbyggðanna. Með uppbyggingu í Skerjafirði er vegið að framtíð og öryggi landsbyggðanna gagnvart sjúkraflugi og nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sem og aðgengi almennings, atvinnulífi og stjórnsýslu að mikilvægum innviðum.

[Sveitarfélag] skorar á borgarstjórn og Innviðaráðherra að fresta ákvörðuninni þar til að sú vinna sem lagt var upp með í fyrrgreindu samkomulagi sé lokið og framtíðarlausn innanlandsflugs tryggð.

Heimir Örn Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Ragnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð

Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Sigríður Guðrún Hauksdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjallabyggð

Almar Marínósson, formaður Sjálfstæðisfélags Þórshafnar

Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi

Freyr Antonsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Dalvíkurbyggð

Baldur Smári Einarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík

Jóhann Birkir Helgason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ

Guðmundur Haukur Jakobsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Húnabyggð

Hafrún Olgeirsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi

Gauti Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Hornafirði

Ásgeir Sveinsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vesturbyggð

Gísli Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði